Innlent

Íslenskur stuðningsmaður varð fyrir fólskulegri árás á O´Sullivans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arnar Þór Gíslason fagnar því að augun hafi sloppið þegar enskur stuðningsmaður réðst á hann upp úr þurru í gærkvöldi.
Arnar Þór Gíslason fagnar því að augun hafi sloppið þegar enskur stuðningsmaður réðst á hann upp úr þurru í gærkvöldi.
„Augun sluppu svo maður getur horft á leikinn,“ segir Arnar Þór Gíslason, stuðningsmaður íslenska landsliðsins, sem varð fyrir tilefnislausri og fólskulegri árás á írskum bar við Rauðu Mylluna um miðnætti í gærkvöldi. 

„Við vorum bara að spjalla við einhverja Frakka og það kemur gaur að okkur sem spyr hvort við séum Íslendingar. Við svörum játandi og sekúndu seinna er nefið farið í sundur,“ segir Arnar Þór í samtali við Vísi. Nefið hafi hreinlega rifnað af en sauma þurfti tuttugu spor. 

Hann segir hlutina hafa gerst svo hratt að hann hafi varla áttað sig á því. Allt í einu hafi hann verið með hluta af nefi sínu í höndinni. Hann hafi nú horft á myndbandsupptökur með lögreglunni í París og þar sést hve skyndileg árásin varð. Þetta hafi bókstaflega gerst á einni sekúndu.

Arnar ræddi árásina einnig í úvarpsþættinum Harmageddon en viðtalið má heyra hér að neðan.


Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu en dyraverðir voru fljótir að stökkva til eftir árásina og handsama manninn sem er að sögn Arnars Þórs 25 ára Englendingur. Sem kunnugt er sigruðu Íslendingar þá ensku 2-1 í sextán liða úrslitum EM. Flestir Englendingar tóku sigri Íslands vel, eins og sjá mér hér, en þó hafa borist fregnir af fleiri Íslendingum sem urðu fyrir barðinu á ósáttum Englendingum.

Sjá einnig: Flöskum kastað í íslenska fjölskyldu eftir leik

Arnar Þór var á lögreglustöð í París þegar Vísir náði af honum tali. Hann bar sig vel, lagði áherslu á mikilvægi þess að geta séð með báðum augum enda stórleikurinn framundan á sunnudaginn, sem Arnar Þór ætlar svo sannarlega ekki að missa af.

Mikill fjöldi Íslendinga skemmti sér konunglega á þessum sama írska bar kvöldið fyrir og eftir að okkar menn lögðu Austurríkismenn á Stade de France í lokaumferð riðlakeppninnar. Staðurinn heitir O’Sullivans, er afar stór og við hlið Rauðu Myllunnar.

Að neðan má sjá svipmyndir frá stemningunni eftir leikinn gegn Austurríki.

Arnar Þór segir að stemningin hafi verið öllu minni í gærkvöldi en sé þó að aukast enda styttist í stóru stundina þegar okkar menn mæta heimamönnum á sunnudaginn.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á FacebookTwitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×