Bíó og sjónvarp

Íslenskir hommar mjög opinskáir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Í TORSO-verkefninu fjallar Tim Marshall um staðalímyndir homma og hvernig stefnumóta-öpp hafa áhrif í því samhengi.
Í TORSO-verkefninu fjallar Tim Marshall um staðalímyndir homma og hvernig stefnumóta-öpp hafa áhrif í því samhengi. Mynd/Tim Marshall
Tim Marshall er ástralskur kvikmyndaleikstjóri en heimildarstuttmynd hans TORSO Reykjavík verður sýnd á RIFF í kvöld, á morgun og á laugardaginn.

Myndin fjallar um upplifun íslenskra homma af stefnumóta-appinu Grindr en Tim hefur gert samskonar myndir í Sydney og Los Angeles sem eru hluti af verkefni sem hann kallar einfaldlega TORSO.

Tim segir í samtali við Vísi að hugmyndin að verkefninu hafi kviknað þegar hann sjálfur notaði stefnumóta-appið Grindr.

„Ég er í rauninni að fjalla um staðalímyndir homma. Mjög margir sem nota stefnumóta-öpp á borð við Grindr setja ekki mynd af andlitinu sínu inn í appið heldur bara mynd af búknum (e. torso) á sér. Fólk er síðan mjög fljótt að dæma og draga ályktanir um manneskjuna út frá myndinni sem það sér í appinu,“ segir Tim.

Enginn kemur fram undir nafni í myndinni en einhverjir óttuðust að þeir myndu engu að síður þekkjast þar sem hommasamfélagið hér á landi er svo lítið.Mynd/Tim Marshall
Erfitt að finna Íslendinga fyrir verkefnið

Tim, sem var einnig í viðtali hjá GayIceland fyrr í dag, tekur ekki myndir af andliti viðmælenda sinna í TORSO heldur bara af búknum svo þeir sem taka þátt koma ekki fram undir nafni.

„Þrátt fyrir að  þátttaka í verkefninu sé nafnlaus þá reyndist mér erfitt að finna þátttakendur hér á Íslandi. Hér er hommasamfélagið svo lítið að sumir óttuðust að þeir myndu einfaldlega þekkjast á búknum einum saman. Ég endaði svo á að taka viðtöl við sex einstaklinga fyrir myndina en hvert viðtal er um 3-4 mínútur.“

Aðspurður hvað hafi komið honum á óvart hér á landi, fyrir utan smæð samfélagsins, segir hann að hversu opinskáir viðmælendurnir hafi svo verið.

„Þeir sem tóku svo þátt í verkefninu opnuðu sig algjörlega og sögðu í mikilli hreinskilni frá upplifun sinni af því að nota Grindr. Þeir sögðu mér í miklum smáatriðum frá lífi sínu sem kom skemmtilega á óvart þar sem það var svo erfitt að finna einhverja sem vildu deila reynslu sinni.“

Tim Marshall, kvikmyndaleikstjóri
Ekkill notaði appið til að hjálpa sér í sorgarferlinu

Tim segir að flestir notið appið til að finna sér bólfélaga og helmingur þeirra sem hann ræddi við kaus frekar að nota appið til að hitta erlenda ferðamenn heldur en Íslendinga, einmitt vegna þess hve Ísland er lítið og maður getur auðveldlega rekist  á þann sem maður hitti í gegnum Grindr úti á götu.

Einn viðmælandi Tims notaði svo reyndar appið fyrir annað en kynlíf.

„Sá maður var nýbúinn að missa eiginmann sinn úr krabbameini og hann hitti fólk í gegnum Grindr sem var að ganga í gegnum það sama og hann sem er nokkuð magnað. Appið hjálpaði honum því í sorgarferlinu og hann myndaði vinatengsl við fólk.“

Ekki er um hefðbundna bíósýningu að ræða heldur hefur Tim þróað app fyrir iPad þar sem fólk velur sér viðmælanda til að horfa á, líkt og það sé að velja sér stefnumót í gegnum Grindr. Hugmyndin sé að fólk fái þannig tilfinningu fyrir hvernig það sé að nota appið.

Um er að ræða sérviðburð á RIFF sem verður á Loft Hostel í kvöld og á morgun frá 17 -20 á laugardaginn frá 14-20. Tim verður viðstaddur og mun svara spurningum og spjalla við gesti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×