Fótbolti

Ísland gæti komist upp í 3. styrkleikaflokk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lars og Heimir þakka áhorfendum á Laugardalsvelli fyrir stuðninginn eftir að Ísland tryggði sér sæti á EM.
Lars og Heimir þakka áhorfendum á Laugardalsvelli fyrir stuðninginn eftir að Ísland tryggði sér sæti á EM. vísir/vilhelm
Líklegast þykir að Ísland verði í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir EM 2016 í Frakklandi.

Drátturinn fer fram í París 12. desember næstkomandi en leikið verður í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í 16-liða úrslit sem og þau fjögur lið sem eru með bestan árangur í 3. sæti riðlanna.

Með góðum úrslitum í síðustu tveimur leikjunum í undankeppni EM sem framundan eru, gegn Lettlandi og Tyrklandi, og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum gæti Ísland komist upp í 3. styrkleikaflokk.

Sjá einnig: Stefnt að 7-8 vináttulandsleikjum fyrir EM

Lars Lagerbäck, annar landsliðsþjálfara Íslands, sagði á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag, þegar landsliðshópurinn fyrir leikina gegn Lettlandi og Tyrklandi var tilkynntur, að liðið hefði mikla hvatningu til að vinna leikina tvo, þrátt fyrir að EM-sætið sé þegar tryggt.

„Fyrsta markmiðið er það sama og alltaf, að vinna leikina, og svo er það mikilvægt fyrir okkur að vinna leikina til að reyna að komast upp um styrkleikaflokk. Við erum í erfiðri stöðu en þetta ræðst á okkar úrslitum og hvaða lið komast á EM,“ sagði Lars.

Fyrri leikurinn í þessum landsleikjatvíhöfða er gegn Lettlandi á Laugardalsvelli 10. október. Þremur dögum síðar leikur Ísland lokaleik sinn í riðlinum gegn Tyrklandi í borginni Konya.

Leikurinn gæti skipt miklu máli fyrir Tyrki sem eru í mikilli baráttu við Holland um 3. sætið í riðlinum sem gefur annað hvort sæti á EM eða í umspili um sæti í lokakeppninni. Tyrkir, sem eru í 3. sætinu fyrir tvo síðustu leikina, mæta Tékkum í fyrri leiknum á meðan Hollendingar sækja Kasakstan heim.

Lars segir að íslenska liðið verði að leggja sig allt fram í leiknum við Tyrkland og sýna andstæðingnum virðingu.

„Ef Tyrkland og Holland eru enn í baráttu um 3. sætið verðum við hafa háttvísi í huga í undirbúningi okkar og frammistöðu í þeim leik,“ sagði Lars og bætti við að tyrkneskir fjölmiðlar hefðu eflaust mikinn áhuga á því hvernig íslenska liðið ætlaði að nálgast leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×