Innlent

Ískaldur og pikkfastur á Nesjavallavegi

Frá Nesjavöllum.
Frá Nesjavöllum. Vísir/GVA
Karlmaður komst í hann krappann á Nesjavallavegi upp úr klukkan þrjú í nótt þegar hann festi bíl sinn í snjó, en vegurinn er merktur ófær. Hann náði ekki símasambandi og þurfti að ganga langa leið í kulda og myrkri uns hann náði sambandi við neyðarlínuna og óskaði eftir aðstoð.

Vegna ástands mannsins var ákveðið að senda björgunarsveitarmenn eftir honum í stað kranabíls, og fundu þeir manninn brátt og fluttu til byggða. Honum mun ekki hafa orðið meint af volkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×