Innlent

Írar skoða vinnslu þörunga í Stykkishólmi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Allt að átján manns gætu starfað í Stykkishólmi við þörungavinnslu og enn fleiri ef þangskurður og -flutningur er meðtalinn.
Allt að átján manns gætu starfað í Stykkishólmi við þörungavinnslu og enn fleiri ef þangskurður og -flutningur er meðtalinn.
„Okkur líst prýðilega á þetta en það þarf undirbúning,“ segir Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, um hugmyndir um þörungavinnslu í bænum.

Írskir eigendur Kalkþörungafélagsins í Bíldudal hafa kynnt áform um að skera þang og þörunga í Breiðafirði til vinnslu í Stykkishólmi undir merkjum félagsins Deltagen Iceland.

Þörungavinnsla hófst á Reykhólum árið 1986, fyrir nærri þrjátíu árum.Fréttablaðið/GVA
Sturla Böðvarsson segir viðræðurnar við forsvarsmenn Deltagen meðal annars hafa snúist um staðsetningu vinnslunnar. Rætt hafi verið um stað nærri hafnaraðstöðu í námunda við skipasmíðastöðina.

„Það er verið að tala um fimmtán til átján manna vinnustað. Þar að auki eru þeir sem sinna þangslætti og söfnun á þangi og þróunar- og tæknivinnu og öðrum störfum sem fylgja. Þetta er í samræmi við þeirra áætlanir sem þeir hafa kynnt fyrir okkur og ég hef kynnt í bæjarstjórn og skipulags- og byggingarnefnd og umhverfisnefnd,“ segir Sturla.

Sturla Böðvarsson
Bæjarstjórinn segir bæði þurfa að skoða málið út frá skipulagslegu sjónarhorni og út frá markmiðum um nýtingu auðlinda í Breiðafirði. „Það er talið að það sé tiltölulega lítill partur sem er nýttur,“ segir Sturla sem undirstrikar að málið sé á frumstigi og að stigið verði varlega til jarðar. „Þessir erlendu aðilar virðast átta sig mjög vel á því hvaða kröfur eru gerðar til umhverfismála og annars hér hjá okkur.“

Að sögn Sturlu gera áætlanir Deltagen Iceland ráð fyrir meiri vinnslu á hráefninu en sé í þörungavinnslunni á Reykhólum.

„Þeir hjá Reykhólaverksmiðjunni eru að nýta þetta í mjöl en hjá Deltagen eru þeir að tala um að vinna þetta einhverjum þrepum lengra.“

Sturla segir um að ræða samstarfsverkefni sem menn séu áhugasamir um að verði að veruleika. „Við eigum í mjög jákvæðum viðræðum,“ segir bæjarstjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×