Bílar

Ingigerður framkvæmdastjóri fyrirtækjasölu Heklu

Finnur Thorlacius skrifar
Ingigerður Einarsdóttir.
Ingigerður Einarsdóttir.
Ingigerður Einarsdóttir hefur gengið til liðs við HEKLU hf. og tekur þar sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins en hún mun stýra fyrirtækjasölu. Ingigerður hefur meðal annars starfað sem sölu- og markaðsstjóri hjá Avis og Budget bílaleigum, gegnt stöðu framkvæmdastjóra Sundsambands Íslands og forstöðumanns sölu- og markaðsmála hjá IGS Ground Services.

Ingigerður er með M.A. gráðu í alþjóðlegri markaðsstjórnun frá Bournemouth University og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði af markaðssviði frá Háskólanum á Akureyri. HEKLA hf er með umboð fyrir Audi, Mitsubishi, Skoda og Volkswagen og starfa um 150 manns hjá fyrirtækinu. Félagið er leiðandi fyrirtæki í innflutningi, sölu og þjónustu við nýjar og notaðar bifreiðar með ríka áherslu á vistvænar samgöngur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×