Innlent

Illugi Jökulsson: „Afskaplega glaður fyrir þeirra hönd“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Illugi afhenti Kristínu Völundardóttir, forstjóra Útlendingastofnunar, tíu þúsund undirskriftir þar sem þess var krafist að fjölskyldunni yrði veitt hæli á Íslandi.
Illugi afhenti Kristínu Völundardóttir, forstjóra Útlendingastofnunar, tíu þúsund undirskriftir þar sem þess var krafist að fjölskyldunni yrði veitt hæli á Íslandi. vísir/gva
Illugi Jökulsson rithöfundur segist afar ánægður fyrir hönd Telati-fjölskyldunnar sem í dag fékk dvalarleyfi hér á landi. Hann segir þessar fregnir sýna fram á mikilvægi þess að samfélagið standi vörð um fólkið sem hingað komi. Illugi safnaði í október tíu þúsund undirskriftum þar sem þess var krafist að fjölskyldunni yrði veitt hæli á Íslandi.

„Ég vona bara að þeim farnist sem best. Ég er afskaplega glaður fyrir þeirra hönd og vona að þetta verði þeim til gæfu,“ segir hann í samtali við Vísi.

Sjá einnig: Telati-fjölskyldan fékk dvalarleyfi

Telati-fjölskyldan komst í fréttirnar í september þegar Fréttablaðið greindi frá því að börnin þrjú hefðu ekki fengið skólavist þrátt fyrir að hafa dvalið á landinu frá því í júní. Fór svo að börnin fengu öll inni í skóla í Laugarneshverfinu. Fjölskyldan fékk í október synjun um hæli hér á landi.

Illugi hóf í kjölfarið undirskriftasöfnun til stuðnings fjölskyldunni. Á tæpum þremur sólarhringum söfnuðust tíu þúsund undirskriftir sem afhentar voru Útlendingastofnun 20. október síðastliðinn. Fjölskylduna þekkir hann þó ekki – og hefur aldrei hitt.

„Mér bara blöskraði þegar ég sá fréttir af þessu því ég gat ekki séð af hverju það ætti að vísa þessu fólki úr landi. Þetta var bara enn eitt dæmið um undarlega stjórnsýslu Útlendingastofnunar þannig að ég startaði þessari undirskriftasöfnun og fékk fádæma góðar undirtektir,“ segir Illugi. Aldrei hefði hann órað fyrir því að söfnunin tæki svo skamman tíma.

„Ég hætti bara eftir þrjá sólarhringa því mér fannst komið nót. Þannig að mér sýnist að það sé full ástæða til að halda vöku sinni, því nú á að vísa annarri fjölskyldu úr landi. Ég sé enga ástæðu til að vísa almennilegu fólki sem hér vill setjast að. Það á ekki að vísa því burt heldur taka þeim sem hingað koma opnum örmum,“ segir hann og vísar þannig í Dega-fjölskylduna sem DV hefur fjallað um.


Tengdar fréttir

Laura Telati. „Heimurinn er okkar allra“

"Heimurinn er okkar allra og það er pláss fyrir okkur öll í honum, svo afhverju að aðgreina og fela sig frá öðrum?“ sagði Laura Telati, albanskur táningur í Laugalækjarskóla, sem vísa á úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×