Innlent

Ída nýr formaður Hallveigar

Bjarki Ármannsson skrifar
Ída Finnbogadóttir.
Ída Finnbogadóttir. Mynd/Aðsend
Ída Finnbogadóttir var kjörinn formaður Hallveigar, félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins síðastliðinn föstudag. Ída tekur við formennsku af Höllu Gunnarsdóttur sem gegnt hefur embættinu síðastliðið starfsár.

Aðrir í stjórn Hallveigar eru Viktor Stefánsson, Branddís Ásrún Eggertsdóttir, Matthew Deaves, Steinunn Jónsdóttir, Snorri Freyr Vignisson og Halla Gunnarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×