Innlent

Iceland Airwaves í vandræðum ef Nasa lokar

Framkvæmdastjóri Iceland Airwaves vill að stjórnvöld íhugi að taka þátt í rekstri tónleikastaða eins og Nasa líkt og gert er við leikhús svo dæmi sé tekið. Styðja þurfi við bakið á íslenskri poppmenningu.

Til stendur að loka tónleikastaðnum NASA fyrsta júní næstkomandi en nú stendur yfir hönnunarsamkeppni um byggingu hótels á reitnum. NASA hefur lengi verið einn af aðal tónleikastöðum á Iceland Airwaves hátíðinni og segir framkvæmdastjórinn það afleitt að missa staðinn.

„Við lendum í vandræðum ef við erum ekki með NASA, því það er bara 20 % gestanna sem við þurfum þá að kötta af. Það er enginn annar staður sem getur tekið við," segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves.

Hann er almennt ekki hrifin af þessum áformum.

„Mér finnst þetta ekki góð áform og náttúrulega margt í því sem hangir saman, bæði skipulagsmál og hvernig starfsemi við viljum sjá í miðbænum. Svo mér falla þessar hugmyndir ekki vel í geð," segir hann.

Eigandi hússins hefur sagt í fjölmiðlum að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir tónleikastað í húsinu og núverandi rekstraraðili eigi í erfiðleikum með að greiða leigu.

„Það er náttúrulega spurning hvenær er rekstrargrundvöllur fyrir nokkrum sköpuðum hlut. Er rekstrargrundvöllur fyrir Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Tjarnarbíói, Hörpunni?" spyr Grímur. „Poppmenning er yfirleitt ekki styrkt að nokkru leyti. Við höfum tónlistarsjóð sem greiðir eitthvað til poppmenningar sem er mjög lítið. Og þá er ég ekki að segja að það eigi að styrkja aðrar greinar. Við erum bara ekkert að styðja við bakið á poppmenningu."

Grímur segir að í nágrannlöndum séu stjórnvöld farin að styðja við rekstur tónleikastaða eins og NASA gegn ákveðnum skilyrðum og það sé góð leið til að styðja við poppmenninguna.

„Nú myndu einhverjir segja já þetta eru ríkisafskipti og allt það en ég er bara hlynntur því að menning sé styrkt ríkulega því hún skilar svo miklu. Hún skilar mörgum mörgum milljörðum og ótrúlegum tækifærum í kynningu erlendis."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×