Enski boltinn

Ulloa hetja Leicester gegn Norwich | Sjáðu markið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Leonardo Ulloa var hetja Leicester í naumum 1-0 sigri toppliðsins á Norwich í ensku úrvalsdeildinni í dag en Ulloa skoraði sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Leicester gat náð fimm stiga forskoti um tíma á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með sigri í dag og áttu eflaust margir von á því að verkefni dagsins yrði auðvelt fyrir topplið Leicester.

Kanarífuglarnir frá Norwich voru hinsvegar ekkert á því að gefast upp og börðust af krafti fyrir stiginu allan leikinn.

Kom eina mark leiksins ekki fyrr en undir lok venjulegs leiktíma á 89. mínútu þegar Ulloa skoraði eftir góðan undirbúning frá Marc Albrighton.

Norwich hafði varla neinn tíma til að jafna metin eftir það og fögnuðu leikmenn Leicester því sigrinum og eru komnir á sigurbraut á ný eftir tapið gegn Arsenal í síðustu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×