Lífið

Í beinni: Dagur 3 á Iceland Airwaves

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úlfur Úlfur kom fram í Hörpunni.
Úlfur Úlfur kom fram í Hörpunni. Vísir/andri marínó
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves byrjaði með pompi og prakt á miðvikudagskvöldið. Erlenda gesti hefur drifið að í vikunni, en þeir verða í miklum meirihluta á hátíðinni. Búist er við mörg þúsund manns á hátíðinni.

Hundruð listamanna munu troða upp um bæinn þveran og endilangan næstu daga. Uppselt er á hátíðina, en alls seldust níu þúsund miðar. Alls verða um 5.500 erlendir gestir á hátíðinni í ár sem er met. Mikil stemning var á hátíðinni í gær og þótti fyrsta kvöldið fara vel fram.

Umræðan á Twitter hefur alltaf verið fyrirverðamikil á hátíðinni og keppist fólk einnig við að setja skemmtilegar myndir inn á Instagram. Hér að neðan má fylgjast með því sem er að gerast á þessum samfélagsmiðlum en til að taka þátt, þarf að merkja færslurnar með #airwaves15.

Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle er einnig mætt til landsins og verður með beina útsendingu frá KEX Hostel eins og síðustu ár.

Tónleikarnir eru hluti af Off-venue dagskrá Airwaves og er aðgangur ókeypis. Hægt er að horfa á útsendinguna í spilaranum hér að neðan.

Dagskráin á KEX í dag:

14:00 - Sóley

16:00 - Agent Fresco

18:00 - Low Roar

19:30 - Bo Ningen

21:30 - Vök

Í Norræna húsinu er einnig metnaðarfull dagskrá þar sem fjöldi hljómsveita frá Skandinavíu koma fram. Tónleikarnir fara fram í nýjum tónleikasal sem kallast Svarti kassinn.

Þeir eru hluti af Off-venue dagskrá Airwaves og er aðgangur ókeypis. Hér að neðan má fylgjast með beinni útsending frá Norræna húsinu.

Dagskrá Norræna hússins í dag:

12:00 Stafrænn Hákon

13:00 Hey Lover (US)

14:00 Jerry Joseph (US)

15:00 ÍRiS

16:00 Sturle Dagsland (NO)

17:00 Dalí

18:00 Østfrost (NO)

 

Tónleikagestir á Iceland Airwaves eru einnig mjög duglegir að deila myndum og myndböndum frá öllu sem tengist hátíðinni í gegnum Instagram.

Hér fyrir neðan má sjá nýjustu myndirnar sem eru merktar með #airwaves15


Tengdar fréttir

Í beinni: Dagur 1 á Iceland Airwaves

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves byrjar með pompi og prakt í kvöld. Erlenda gesti hefur drifið að í vikunni, en þeir verða í miklum meirihluta á hátíðinni. Búist er við mörg þúsund manns á hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×