Bíó og sjónvarp

Hvorki söngur né Li Shang í leikinni endurgerð af Múlan

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Enginn Li Shang verður í endurgerðinni.
Enginn Li Shang verður í endurgerðinni. Skjáskot/Disney
Nýsjálenski leikstjórinn Niki Caro staðfesti í síðustu viku að hún muni leikstýra nýrri leikinni endurgerð af Disney teiknimyndinni Mulan. Í viðtali við vefinn Moviefone staðfesti hún orðróma um að endurgerðin verði ekki söngleikur, en upprunalega teiknimyndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tónlist árið 1999.

Sean Bailey, sem fer fyrir kvikmyndagerð Disney, sagði í samtali við Vulture að myndin verði meira í anda leikstjórans Ridley Scott, sem leikstýrði meðal annars kvikmyndunum Blade Runner og Gladiator.

„Mulan er valdeflandi kvenhetjusaga en við getum líka gert eitt með þessari endurgerð, gert hana aðeins vöðvastæltari, sterkari, með smá Ridley Scott,“ sagði Bailey.

Caro segir að endurgerðin verði „stórbrotin, stelpuleg bardagalista epík. Hún verður spennandi, skemmtileg og hrífandi.“

Röð endurgerða

Endurgerðin af Mulan er sú nýjasta í röð leikinna endurgerða af teiknimyndum hjá Disney. Nú á dögunum kom út endurgerð af Fríðu og Dýrinu og þá kom endurgerð af Skógarlífi út á síðasta ári. Meðal þeirra ástsælu teiknimynda sem Disney hyggst endurgera sem leiknar kvikmyndir eru Aladdín, Konungur ljónanna og Pétur Pan. 

Hlutverkalisti fyrir kvikmyndina lak nýverið á netið og hefur það vakið athygli að hlutverk Li Shang, herforingja herdeildar Mulan, er ekki á listanum. Þess í stað hefur verið lýst eftir leikara í hlutverk Chen Honghui, karlmanns á tvítugsaldri sem bætist í herdeild Mulan og verður einn helsti keppinautur hennar.

Þessar breytingar á myndinni hafa ekki farið vel ofan í aðdáendur, sem fá ekki að heyra Li Shang syngja um að gera karlmenn úr hermönnum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×