Bíó og sjónvarp

Hvolpasveitin tekin til sýninga á ný

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hvolpasveitin nýtur gríðarlegra vinsælda bæði hjá foreldrum og börnum.
Hvolpasveitin nýtur gríðarlegra vinsælda bæði hjá foreldrum og börnum.
Hinn sívinsæli sjónvarpsþáttur Hvolpasveitin verður tekin til sýninga á ný á RÚV í fyrramálið í kjölfar fjölda áskorana. Frá þessu er greint á Facebook-síðu RÚV og ef marka má viðbrögðin við færslunni eru foreldrar og börn afar ánægð með þessi tíðindi.

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, segir að ný þáttaröð af Hvolpasveitinni sé nýkomin í hús og verði ekki tilbúin með íslensku tali fyrr en í marslok.

Það verður því brugðið á það ráð nú að endursýna þætti úr nýjustu seríunni en Skarphéðinn segir mikinn fjölda þátta í hverri seríu; sú nýjasta var í sýningu síðastliðið ár og ætti því að vera nokkuð síðan elstu þættirnir úr henni voru á dagskrá.

Að sögn Skarphéðins fékk RÚV mikinn fjölda fyrirspurna um hvenær Hvolpasveitin yrði næst á dagskrá og áskoranir um að setja þáttinn aftur á dagskrá.

„Við ákváðum einfaldlega að bregðast við því eins og við reynum alltaf að gera þegar svona margir hafa samband og eru að spyrja eftir því sama, og fara strax í að sýna aftur þessa þáttaröð sem var seinast á dagskrá þar til að nýr skammtur af glænýjum þáttum af Hvolpasveitinni er klár,“ segir Skarphéðinn í samtali við Vísi.

Skarphéðinn segir að uppnámið hafi tengst því að síðasti þátturinn var að detta út af VOD-inu, Sarpinum, KrakkaRúv og öðrum veitum þar sem hægt er að horfa á gamla þætti.

„Það stefndi í að það yrði mjög örlagarík stund þegar það yrði enginn þáttur eftir, jafnvel þó að krakkarnir hafi verið að horfa aftur og aftur á sama þáttinn. En þau geta tekið gleði sína á ný, börn og sérstaklega foreldrar og þá ekki síst feður skilst mér en það skapaðist víst mikil umræða um þetta á sérstakri pabbasíðu á Facebook og þar var mikil örvænting í því hvernig það ætti að útskýra fyrir börnunum að það væri engin Hvolpasveit,“ segir Skarphéðinn.

Í seinasta mánuði baðst Aðalsteinn Kjartansson, einn umsjónarmanna Morgunútvarpsins á Rás 2, afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Hvolpasveitina en hann sagði að þátturinn væri leiðinlegur.

Þá varð nokkuð uppnám á heimili Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, þegar sjónvarpið á heimilinu gaf upp öndina í miðjum þætti af Hvolpasveitinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×