Formúla 1

Hulkenberg verður áfram hjá Force India

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Hulkenberg
Nico Hulkenberg Vísir/Getty
Nico Hulkenberg hefur samið við Force India til 2017, eftir að hafa ekki fengið Ferrari sæti. Liðið er ánægt með stöðugleikann.

Hulkenberg hafði verið orðaður við sæti hjá nokkrum liðum, þar á meðal Ferrari sæti Kimi Raikkonen, sem hann missti af. Haas liðið hafði einnig verið nefnt til sögunnar.

Force India lýsti lendingunni sem „mikilvægum stöðugleika á næstu árum.“ Hulkenberg sagðist „mjög ánægður með að geta klárað málið“ segir gott að hafa framtíðina skýra.

„Ég þekki liðið inn og út og mér líður eins og heima hjá mér hérna svo það var rökrétt að vera um kyrrt,“ sagði Hulkenberg.

„Framfarir liðsins undanfarin tvö ár hafa sýnt að það ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. Ég held að það sé allt til staðar til þess og ég vil halda áfram að vaxa með liðinu á meðan við færumst saman nær toppnum,“ bætti Hulkenberg við.

Líklega hefur Hulkenberg samið um að fá að taka þátt í Le Mans sólarhringskappakstrinum aftur á næsta ári. Hann var í sigurliði keppninnar í ár og hlaut mikið lof fyrir akstur sinn. Slíkar óskir gætu hafa komið í veg fyrir að hann semdi við annað lið.

„Ég fer ekkert leynt með að vera einn stærsti aðdáandi Nico svo það er frábært að staðfesta að hann verði hjá okkur næstu tímabil. Hann hefur verið fjögur ár með liðinu nú þegar og á þeim tíma höfum við éð hann verða einn besta ökumann heims,“ sagði Vijay Mallya, liðsstjóri Force India.

„Nico hefur hraðann, tæknilegu þekkinguna og þroskann til að hjálpa okkur að ná frábærum úrslitumá næstu árum. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda áfram að þróa bíl sem hentar hans styrkleikum,“ sagði Mallya að lokum.


Tengdar fréttir

Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016

Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×