Formúla 1

Hulkenberg og Massa fljótastir á blautum æfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hulkenberg var fljótastur á fyrri æfingunni.
Hulkenberg var fljótastur á fyrri æfingunni. Vísir/Getty
Nico Hulkenberg á Force India var fljótastur á fyrri æfingu dagsins í Rússlandi. Felipe Massa á Williams var fljótastur á seinni æfingu dagsins.

Upphaf fyrri æfingarinnar frestaðist um hálftíma sökum þess að díselolía hafði lekið á brautina.

Sebastian Vettel, varð þriðji. Hann lýsti brautinni sem „skitugri“ á hans fyrsta hring.

Nico Rosberg á Mercedes varð annar, einungis fimm hundruðustu úr sekúndu á eftir Hulkenberg. Heimsmeistarinn, Lewis Hamilton á Mercedes varð sjöundi eftir að hann snéri bíl sínum á brautinni.

Force India var í fínu formi, Sergio Perez tryggði þeim bestu æfingu liðsins frá upphafi með því að verða fjórði.

Létt rigning féll eftir að díselolían hafði verið hreinsuð upp. Brautin þornaði þó fljótlega en ökumönnum þótti hún enn hál.

Felipe Massa var fljótastur þeirra sem settu tíma á seinni æfingunni.Vísir/Afp
Rigningin snéri aftur og setti mikið strik í reikninginn á seinni æfingunni. Einungis átta ökumenn settu tíma.

Vettel varð annar á Ferrari, Valtteri Bottas á Williams þriðji og Max Verstappen á Toro Rosso fjórði. Mercedes tók engan þátt, ekkert frekar en Force India sem átt sína bestu æfingu á fyrri æfingu dagsins.

Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, útsendingin hefst klukkan 11:50 á morgun. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 10:30 á sunnudag, einnig á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi

Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina.

Rosberg: Titilbaráttan er ekki búin

Nico Rosberg hefur ekki gefist upp á að verða heimsmeistari ökumanna í ár. Bilið milli hans og liðsfélaga hans hjá Mercedes Lewis Hamilton er breikkaði í síðustu keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×