Skoðun

Hratt og hljótt

Erling Freyr Guðmundsson skrifar
Það er sama hvort fólk ætlar að hittast í matarboði, hóa til ættarmóts eða hafa samband við fjarstaddan félaga að tæknin sem við notum til að koma þessu í kring hefur gjörbreyst á örfáum árum. Áður hefðum við líklega notað heimasímann til flestra þessara hluta en nú hafa tölvurnar okkar og snjallsímarnir leyst hann af hólmi. Raunar hefur heimasímatengingum, sem heita fastlínutengingar á fagmálinu, fækkað um næstum 30 þúsund á einum áratug. Sífellt færri eru með heimasíma. Gögnin eru annars konar og fara eftir öðrum leiðum.

Fyrirsögnin hér að ofan, sem er útúrsnúningur úr þekktu dægurlagi, lýsir því kannski ágætlega sem hefur verið að gerast.

Við sjáum þetta skýrlega á margföldun gagnaflutnings um farsímakerfin. Það 200-faldaðist milli áranna 2008 og 2015. Það er í svona tölum sem við sjáum á einum stað það sem við rekum stundum augun í í fermingarveislunum, þegar eldra fólkið lítur unglinginn í símanum hornauga.

Öflugri farsímanet af sífellt nýrri kynslóð kalla á aukna flutningsgetu burðarnetsins sem tengir saman möstur og miðstöðvar farsímafyrirtækjanna. Þar er Gagnaveita Reykjavíkur að störfum með því að reka slíkt opið net af öryggi, sem sinnir þessari margföldun gagnaumferðar um farsímakerfin. Það er ljósleiðara­net sem þjónar þessum og raunar einnig fleiri fyrirtækjum sem þurfa að koma miklu magni gagna fljótt og örugglega á milli staða. En fólkið nýtur líka Ljósleiðarans beint í sífellt auknum mæli.

Á svipuðu tímabili og gagnaflutningur um farsíma 200-faldaðist hefur ljósleiðaratengdum heimilum á Íslandi fjölgað nærri þrítugfalt. Þegar Gagnaveita Reykjavíkur var að stíga sín fyrstu spor, árið 2007, voru slíkar tengingar rúmlega 1.200 talsins. Í lok síðasta árs voru virkar ljósleiðaratengingar á Íslandi tæplega 34.000 og þeim fjölgar dag frá degi.

Þetta er bylting sem hefur ekki farið hátt. Víða í þéttbýlinu hafa íbúar orðið varið við það meðan á ljósleiðaravæðingunni hefur staðið og öðru hvoru rekum við augun í fréttir af byggðarlögum sem nýta ljósleiðaratengingar til að bæta lífsskilyrði fólks og fyrirtækja. Tölur á borð við þessar sjást hins vegar sjaldan dregnar saman.

Ljósleiðari Gagnaveitu Reykjavíkur hefur haft þá sérstöðu að með samningum við sveitarfélög hefur öllum heimilum innan þéttbýlis sveitarfélaganna staðið til boða að tengjast Ljósleiðaranum. Gagnaveitan býður ekki þjónustu um tenginguna og er því ekki í samkeppni við þá viðskiptavini fyrirtækisins sem það gera. Þetta viðskiptalíkan hefur gefist stórvel. Í lok þessa árs munu heimili tengd Ljósleiðara GR verða orðin 77 þúsund talsins. Reykjavík er öll tengd og fjöldi annarra stórra sveitarfélaga sem sjást á þessu yfirliti. Þéttbýli þeirra sveitarfélaga sem þar eru verður allt fulltengt í árslok 2018. Það er bylting.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júní




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×