Innlent

Hraða viðgerðum í Kelduhverfi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr Öxarfirði.
Úr Öxarfirði. Vísir/Vilhelm
Langbylgja RÚV næst í Kelduhverfi og Öxarfirði þótt FM útsendingar RÚV á svæðinu hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Þetta kemur fram í tilkynningu RÚV til Vísis. Þar segir að viðgerðum á FM sendum hafi verið hraðað og vonast til að þeir verði komnir í betra horf eigi síðar en 26. ágúst.

Erlendur Garðarsson, sumarbústaðaeigandi í Kelduhverfi, lýsti í samtali við Vísi fyrr í dag hve illa væri komið fyrir íbúum og öðrum á svæðinu. Eftir að mastur á Viðarfjalli féll í vetur væri ómögulegt að hlusta á útvarpsrásir RÚV.

„Ég var að hlusta á Rás 2 áðan þar sem fólk í Kelduhverfinu var hvatt til þess að fylgjast vel með fréttum og leiðbeiningum á RÚV,“ segir Erlendur. Það sé sérstaklega fyndið en þó ekki í ljósi þess að fólk nær ekki RÚV. Bylgjan sé í raun og veru eina útvarpsstöðin sem náist á svæðinu og fólk treysti á.

Gunnar Örn Guðmundsson, forstöðumaður RÚV, segir í tilkynningunni að því miður þekki allir að hökt geti komið í flest dreifikerfi um stundarsakir.

„Möstur og útsendingarlofnet eiga það til að falla vegna vályndra veðra og sífellt er unnið að því að bæta fyrir þau möstur sem hafa fallið eða eru úreld vegna bættrar tækni.“

Gunnar Örn vísar til þess þegar mastrið féll á Viðarfjalli í vetur.

„Það gerði það að verkum að FM útsendingar RÚV í Keldukverfi og Öxarfirði hafa ekki verið eins og best verður á kosið. RÚV hefur unnið með sérfræðingum Vodafone að því að setja upp nýjan búnað til að bæta það sem brást.“

Sem betur fer ógni þetta ekki dreifingu RÚV á svæðinu því eftir sem áður náist langbylgjuútsendingar vel á svæðinu auk stafrænar útsendingar sjónvarps og útvarps og netþjónusta sé með eðlilegum hætti.

„Vegna atburðarrásarinnar við Bárðarbungu var ákveðið að hraða viðgerðum á FM sendum á svæðinu og er vonast til að þeir verði komnir í betra horf eigi síðar en 26. ágúst.“


Tengdar fréttir

Hugsar til félaga sinna í Kelduhverfinu

"Þetta er high-risk svæði þannig að það er algjör slóðaháttur að yfirvöld hafi ekki tekið sig saman í andlitinu og komið þessu í lag,“ segir Erlendur Garðarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×