Innlent

Hótaði afgreiðslumanni með hnífi

Bíræfinn þjófur hótaði afgreiðslumanni með hnífi í verslun í Breiðholti laust fyrir klukkan fjögur í nótt, en átökum þeirra lauk án þess að nokkurn sakaði. Þjófurinn kom inn í verslunina með tösku og tók að tína vörur í hana.

Hann brást ókvæða við þegar afgreiðslumaðurinn, sem jafnframt er örygisvörður, hafði afskipti af honum og greip hann þá til hnífsins. Í miðjum klíðum missti hann hnífinn og tók þá til fótanna, en skildi eftir töskuna og þýfið. Hann er ófundinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×