Fótbolti

Högmo tekur við Noregi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Per-Mathias Högmo.
Per-Mathias Högmo. Nordicphotos/Getty
Per-Mathias Högmo verður næsti þjálfari karlalandsliðs Noregs í knattspyrnu. Tilkynnt verður um ráðninguna á blaðamannafundi í dag.

„Ég er afar spenntur fyrir starfinu sem landsliðsþjálfari,“ segir Högmo í viðtali við Dagbladet. Högmo tekur við liðinu af Egil „Drillo“ Olsen sem lætur af störfum að lokinni undankeppni heimsmeistaramótsins.

Nýi þjálfarinn, sem er 53 ára gamall, segist vera fullur af hugmyndum og vilji prófa nýja hluti með norska liðið. Hann er þjálfari Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Ísland mætir Noregi í lokaleik þjóðanna í E-riðli undankeppni HM þann 15. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×