Innlent

Höfðu verið föst á ísnum í heila viku

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurður Pétursson
Sigurður Pétursson vísir/reynir traustason
Sigurður Pétursson, sambýliskona hans, Anna Manikutdlak, þriggja ára dóttir þeirra, Sunna, og systir Önnu höfðu verið föst í bát sínum á ís undan austurströnd Grænlands í viku þegar gat kom á bátinn í gær og hann fylltist af sjó. Þau sluppu öll ómeidd en biðu í fjóra tíma í björgunarbát áður en þeim var bjargað með þyrlu sem flutti þau til Kulusuuk.

Sigurður og fjölskylda voru á leiðinni frá Bolungarvík til Tasilaaq en báturinn hafði verið í slipp í Bolungarvík.

„Vanalega tekur siglingin frá Bolungarvík til Tasilaaq tvo sólarhringa en við vorum búin að vera á ferðinni í níu daga því við festumst þarna á ísnum í viku. Við vorum á kafi í ís en það var farið að blása mikið og mikill sjógangur. Ísinn hefur því bara barið gat á bátinn,“ segir Sigurður í samtali við Vísi.

Eftir að gat kom á bátinn í gær tókst Sigurði að koma bátnum út á haf en þá var hann orðinn hálffullur af sjó. Fjölskyldan komst um borð í björgunarbát og segir Sigurður að þá hafi ekki verið nein stórhætta á ferðum.

Aðspurður hvernig litlu dóttur hans hafi liðið segir hann að hún hafi staðið sig „eins og sleggja,“ enda hafi hún kannski ekki alveg gert sér grein fyrir hvað var að gerast.  

Hvergi betra að vera en í bátnum

Sigurður telur að báturinn sé á floti ennþá en allt sé væntanlega ónýtt í honum og ekki hægt að komast að honum eins og stendur.

„Þetta er mikið tjón því mest af mínum eigum hef ég í bátnum. Ég er meira og minna alltaf í bátnum og lifi af honum, sigli með ferðamenn og rannsóknarhópa,“ segir Sigurður.

Hann segir að um stóran og góðan bát hafi verið að ræða og það hafi farið vel um fjölskylduna í bátnum þessa viku sem þau voru föst á ísnum.

„Meðan það var ekki mikil hreyfing í ísnum þá var þetta bara eins og á hóteli. Það fer hvergi betur um mann en í honum þó maður sé fastur í ís.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×