Lífið

Hljómsveitirnar á Iceland Airwaves kynntar í litríku myndbandi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
DJ Flugvél og Geimskip tilkynnir nöfnin á sinn einstaka hátt.
DJ Flugvél og Geimskip tilkynnir nöfnin á sinn einstaka hátt.
Mourn, Gus Gus, Batida, Hinds og Júníus Meyvant eru meðal þeirra sem voru kynnt til leiks á Iceland Airwaves 2015. Hátíðin hefur um árabil notið gífurlegra vinsælda og laðað að sér margar skemmtilegar erlendar hljómsveitir auk þess sem stærstu íslensku sveitirnar hafa komið fram á hátíðinni.

Hátíðin fer fram 4. - 8. nóvember og er búist við mörgum erlendum gestum á hátíðina.

Hér að neðan má sjá allar þær hljómsveitir og söngvara sem tilkynnt hefur verið um að komi fram á hátíðinni. Ljóst er að eitthvað mun bætast í þegar fram líða stundir. Unnsteinn Manúel er leikstjóri þessa hressa og skemtilega myndbands.

Ítarlega umfjöllun um sveitirnar má finna á vef Harmageddon.

Iceland Airwaves 2015 - nr.1 from Iceland Airwaves on Vimeo.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×