Skoðun

Hjartasjúklingur segir frá

Sigurður Björnsson skrifar
Í desember árið 2012 gekkst ég undir hjartaskurðaðgerð á Landspítalanum. Læknar og hjúkrunarfólk, sem stenst samanburð við það besta sem gerist í öðrum löndum, stundaði mig og kom mér til góðrar heilsu á ný. Ég hafði fyrir þessi veikindi ekki áttað mig á því hve hart hefur verið gengið fram í niðurskurði heilbrigðisþjónustunnar á undangengnum árum. Eftir að hafa verið mjög heilsuhraustur alla tíð og í góðu líkamlegu formi, átti ég þrautagöngu milli margra lækna í heil tvö ár, áður en lagt var í dýrar rannsóknir sem loks leiddu sjúkdóminn í ljós.

Langur biðlisti var í hjartaþræðingu. Ástæðan var gamall og bilaður tækjabúnaður og skortur á sérfræðingum til að framkvæma þessa aðgerð. Loks komst ég í hjartaþræðinguna, en þá vildi ekki betur til en svo að í miðri aðgerðinni bilaði hjartaþræðingatækið. Þarna lá ég með þráðinn, sem lá eftir æðakerfinu frá úlnlið og inn að hjarta og beið meðan tæknimenn dreif að til að gera við tækið. Umhyggjusamur læknirinn sem stjórnaði aðgerðinni fullvissaði mig um að engin hætta væri á ferðum, en ég get ekki sagt að ég hafi verið rólegur meðan verið var að gera við þræðingatækið. Niðurstaðan eftir hjartaþræðinguna var að ég þurfti að fara í skurðaðgerð.

Margra vikna bið var eftir aðgerð. Ég þurfti að treysta á lyf og bráðamóttöku hjartadeildar ef veikindin ágerðust. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir öllum þeim fjölda sérfræðinga sem kemur að jafn stórri aðgerð og ég þurfti að gangast undir. En ég fékk mikið traust á öllu þessu fólki.

Þegar ég vaknaði eftir skurðaðgerðina og opnaði augun, eftir margra klukkutíma svæfingu, sá ég að kerfisloftið fyrir ofan rúmið í herberginu hafði verið rifið niður og við blöstu berar víraflækjur og pípulagnir. Dagana á eftir, þegar ég fór að jafna mig eftir aðgerðina, tók ég eftir álaginu sem var á starfsfólkinu. Læknar og hjúkrunarfólk var á sífelldum þönum, hljóp beinlínis eftir göngunum. Yfirlæknir skurðdeildarinnar birtist á öllum tímum til að líta eftir sjúklingum sínum. Það leyndi sér ekki að álagið var mikið. En umhyggjan var líka mikil. Örfáir dagar voru til jóla og auðvitað vann þarna fjölskyldufólk.

Ég var mjög bjartsýnn eftir síðustu alþingiskosningar. Það urðu kynslóðaskipti í pólitíkinni og ég bjóst satt að segja við nýrri forgangsröðun. En sú kynslóð stjórnmálamanna sem tekin er við virðist helst þjóna þröngum hagsmunum. Hefur lítinn áhuga á sjúklingum og þeim sem minna mega sín. Kannski hefði fólk í ríkisstjórninni gott af því að dvelja um tíma meðal sjúklinga á Landspítalanum og kynnast á eigin skinni fjársveltinu, sem er að skerða hættulega mikið gæði heilbrigðisþjónustunnar í landinu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×