Innlent

Hetjudáðir eiga aldrei við í vopnuðum ránum

Benedikt Bóas skrifar
Arnór Sigurðsson á námskeiðinu Ógnandi hegðun.
Arnór Sigurðsson á námskeiðinu Ógnandi hegðun. Mynd/Öryggismiðstöðin
Eftir tvö vopnuð rán í mars, annað í Glæsibæ og hitt á Bíldshöfða, hefur fyrirspurnum til Öryggismiðstöðvarinnar um námskeiðið Ógnandi hegðun fjölgað töluvert og fyrirtæki sýnt áhuga á að senda starfsmenn sína á það. Þar er reynt að undirbúa starfsfólk eins vel og mögulegt er lendi það í vopnuðu ráni.

„Þetta kemur í skorpum. Þegar tvö rán verða þá fara atvinnurekendur að hugsa hvernig þeir geti brugðist við ef þeirra verslun og þeirra starfsfólk lenti í svona,“ segir Arnór Sigurðsson, sem er einn af kennurum á námskeiðinu.

Arnór segir að farið sé yfir ýmsa þætti á námskeiðinu eins og hvernig sé að lenda í vopnuðu ráni og viðbrögð við því. Þeir sem lenda í ráni eru oftar en ekki lengi að jafna sig. Það sé mikið sjokk að fá öskrandi og ógnandi ræningja, sem eru oftast vopnaðir, inn í verslun til sín.

„Það er eðlilegt að taka svona nærri sér. Þegar einhverjum er ógnað og það er farið inn á persónulegt svæði manneskju, þá getur það verið mikið áfall. Þess vegna skiptir miklu máli vinnan sem fer af stað eftir ránið. Við komum ekki í veg fyrir að svona hlutir gerist en við getum unnið rétt úr þeim eftir á. Fyrir fyrirtæki og atvinnurekendur skiptir miklu máli að bregðast rétt við með réttum stuðningi fyrir starfsfólk sitt.“

Arnór segir að það sé meiri skilningur nú hjá atvinnurekendum gagnvart starfsfólki sínu. „Viðskiptavinum sem hafa komið á námskeið er umhugað um starfsfólkið enda er það grunnurinn að starfseminni. Það er verið að fjárfesta í þeim og það skiptir máli að sýna þeim þann stuðning ef eitthvað kemur upp á og undirbúa það.“

Ef einhver lendir í vopnuðu ráni þá er aðalatriðið að reyna ekki að leika hetju.

„Það er númer eitt, tvö og þrjú. Það vilja allir komast heim til sín eftir vinnudaginn og í flestum tilfellum eru þetta dauðir hlutir og heilsa starfsmannsins er aðalatriðið. Við brýnum fyrir fólki að vera ekki að leika hetju. Það er gullna reglan í þessu, að hugsa um sitt eigið öryggi,“ segir Arnór. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×