Enski boltinn

Hetja Selfyssinga: „Tilfinningin gæti varla verið betri“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fyrstudeildarlið Selfoss gerði sér lítið fyrir í kvöld og skellti stórliði KR, 2-1, í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta.

KR er sigursælasta lið í sögu bikarkeppninnar og hafði fyrir leikinn í kvöld ekki tapað fyrir liði úr B-deild í 24 ár. Þá er þetta í fyrsta sinn sem KR fellur úr leik í 32 liða úrslitum.

Sigurmark Selfoss skoraði Arnar Logi Sveinsson, 19 ára gamall strákur, undir lok framlengingarinnar og var hann eðlilega í skýjunum þegar Vísir ræddi við hann eftir leik. „Tilfinningin gæti varla verið betri. Þetta er bara frábært. Það er ekkert annað hægt að segja,“ sagði Arnar Logi.

„Við komum í leikinn til að njóta upplifuninnar. Við erum að spila á stærsta velli landsins á móti einu besta liði landsins. Við héldum skipulagi og boltinn var að rúlla vel. Við fáum mark á okkur sem var frekar leiðinlegt en síðan komu við sterkir til baka og hlaupum meira en þeir.“

Arnar Logi var viðurkennir að það var stress í Selfyssingum í framlengingunni enda að spila við eitt besta lið landsins. Á endanum vildu gestirnir þetta bara meira og æfingar vetrarins skiluðu sér.

„Við héldum áfram og börðumst eins og ljón. Við erum búnir að vinna fyrir þessu í allan vetur. Við erum búnir að vera á endalausum þrekæfingum í vetur hjá Gunna [Gunnars Borgþórssonar, þjálfara Selfoss] og það er að skila sér núna,“ sagði han.

„Það var alltaf smá stress og menn voru varkárir. Síðan ákváðum við bara að klára þetta í framlengingunni og gerðum það,“ sagði Arnar Logi Sveinsson.


Tengdar fréttir

KR-ingar höfðu ekki látið neðrideildarlið slá sig út í 24 ár

KR-ingar hafa komist í undanúrslit bikarkeppninnar undanfarin átta ár og sex sinnum í bikarúrslitaleikinn á þessum átta árum. Liðið spilar hinsvegar bara einn bikarleik á árinu 2016 eftir 2-1 tap á móti 1. deildarliði Selfoss á KR-vellinum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×