Innlent

Hermenn frá Singapúr komu Auði til bjargar

Benedikt Bóas skrifar
Salihin Idderos, Muhammad Faishal, Muhammad Nasir og Muhammad Syahidin við Reynisfjöru. ?Mynd/Úr einkasafni
Salihin Idderos, Muhammad Faishal, Muhammad Nasir og Muhammad Syahidin við Reynisfjöru. ?Mynd/Úr einkasafni
„Þegar ég sá ástandið á bílnum var ég ekki viss um að ökumaðurinn hefði sloppið lifandi. Sem betur fer heyrðist í henni þegar við nálguðumst bílinn,“ segir Muhammad Syahidin frá Singapúr, sem birti myndband á Facebook-síðu sinni af því þegar hann og vinir hans björguðu Auði Gísladóttur sem velti bíl sínum skammt frá Litlu kaffistofunni um miðjan síðasta mánuð.

Málið vakti töluverða athygli á sínum tíma og hafa fjölmiðlar frá Singapúr sagt fréttir af hetjudáð félaganna.

„Við vorum allir saman í hernum og komum til Íslands til að sjá norður­ljósin. Því miður tókst það ekki,“ segir Syahidin sem kallar sig Denda Maradona á Facebook.

„Ferðin til Íslands var áhugaverð, erfið en skemmtileg. Við ferðuðumst mikið þessa 13 daga sem við vorum á Íslandi og náðum að skoða margt og sjá mikið,“ segir Syahidin sem kveður þá félaga hafa verið á leið frá Reykjavík til að sjá Gullfoss er þeir sáu slysið.

„Skyndilega sást rauður bíll fyrir framan mig lenda á skilti og fara margar veltur. Ég held að þær hafi verið fimm. Þeir sem stoppuðu hringdu í sjúkrabíl sem var kominn eftir skamman tíma og það töluðu allir bara íslensku sem við skildum ekkert í. Því héldum við bara okkar leið áfram að fossinum.“

Skjáskot úr myndbandinu þar sem bíllinn sést á hvolfi.
Syahidin birti myndbandið á Facebook-síðu sinni þar sem það var fljótt að berast til fjölmiðla, bæði hér heima og erlendis. Auður sá myndbandið skömmu eftir slysið og grét þegar hún horfði á það.

„Mér finnst mjög ógnvekjandi að sjá þetta myndband. Ég man ekkert eftir þessu. Mér finnst samt gott að þetta hafi verið tekið upp til að hægt sé að brýna fyrir fólki að fara varlega og vera með bílbelti spennt í umferðinni,“ sagði Auður við Vísi.

Þeir félagar eru ánægðir með þau tíðindi að hún sé að ná sér. Þeir eru nú komnir aftur til síns heima og vonast til að koma aftur til Íslands enda hafi þeir misst af sýningunni í háloftunum. „Við förum til Indlands á næsta ári og vonandi komum við aftur til Íslands einn daginn,“ segir Syahidin.

Myndbandið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×