Innlent

Henti glösum og slóst við dyraverði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það var frekar rólegt að gera hjá lögreglunni í nótt ef marka má dagbók hennar.
Það var frekar rólegt að gera hjá lögreglunni í nótt ef marka má dagbók hennar. vísir/kolbeinn tumi
Rétt fyrir klukkan hálffjögur í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í miðbænum þar sem dyraverðir voru með mann í tökum. Maðurinn hafði verið að henda glösum inni á staðnum og síðan slegist við dyra. Lögreglan handtók hann og færði í fangageymslu.

Á svipuðum tíma var tilkynnt um sofandi mann á bekk í miðbænum. Ekki tókst að vekja manninn og var hann því fluttur á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann var vistaður í fangageymslu. Hvorki er vitað um nafn hans né kennitölu.

Þá voru tveir menn fluttir á slysadeild eftir að hafa dottið en annar þeirra datt utandyra í miðbænum og rotaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×