Innlent

Heimsótti Minsk og fræddist um athvarf

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Högni skoðaði athvarfið sem er rekið af Rauða krossinum á Íslandi.
Högni skoðaði athvarfið sem er rekið af Rauða krossinum á Íslandi. myndir/Þórir Guðmundsson
Ræddu málin Högni ræddi við skjólstæðinga athvarfsins.
„Þetta var mjög skemmtilegt og áhugavert, að sjá þetta athvarf sem Rauði krossinn á Íslandi rekur þarna,“ segir Högni Egilsson söngvari, sem er á tónleikaferðlagi með hljómsveitinni Gus Gus. Í vikunni heimsótti hann athvarf fyrir fólk með geðraskanir í Minsk í Hvíta-Rússlandi sem rekið er með aðstoð frá Rauða krossinum á Íslandi.

Athvarfið er ætlað fólki sem er að aðlagast daglegu lífi eftir spítalavist á geðdeild. Það var reist að fyrirmynd slíkra athvarfa sem eru rekin hérlendis, meðal annars Vinjar við Hverfisgötu, Lautar á Akureyri og Dvalar í Kópavogi.

Högni hefur sjálfur sagt frá því opinberlega að hann sé með geðhvarfasýki og gat því miðlað af reynslu sinni til þeirra sem sækja athvarfið. Mikil vanþekking er á geðsjúkdómum í Hvíta- Rússlandi, að sögn Högna.

Hann segir fólkið sem hann ræddi við margt hafa þurft að sæta miklum fordómum. „Það var skemmtilegt að koma þarna inn og eiga í samræðum við fólkið sem lendir á upp kant við samfélagið sitt vegna einhverrar greiningar. Það eru miklir fordómar og lítil vitneskja.

Þarna hitti ég til dæmis stelpu sem var greind með geðklofa þegar hún var 16-17 ára og í kjölfarið mætti hún lokuðum dyrum alls staðar í umhverfi sínu. Hún mátti ekki fara í leikfimi í skólanum og gat svo ekki farið í háskóla að læra hönnun eins og hana langaði. Þarna heldur fólk oft á tíðum að geðklofa einstaklingar séu hættulegir enda vanþekkingin mikil.“ 

Hann segir að þó að vissulega sé þekkingin á geðsjúkdómum lengra á veg komin hérlendis þá séu samt fordómar til staðar. „Í kjölfarið á því að ég talaði opinberlega um mína sögu þá hafa margir talað við mig og sagt mér sínar sögur eða einhverra sem tengjast þeim. Það eru margir hræddir við geðsjúkdóma og það þarf að sýna þessum einstaklingum stuðning og hlusta á þá til þess að gera þeim kleift að vera með í samfélaginu.“

Högni ræddi við fólkið í athvarfinu um þessi málefni og tók líka lagið. „Fólkið þarna var mjög innblásið. Það eiga allir rétt á sínum upplifunum. Það þarf að tala um verðmætin og þau gildi sem það felur í sér að eiga sér sögu, eiga sér þessa þrekraun og takast á við umhverfi sitt. Í því er fólgin ákveðin sorg og reynsla en um leið gerir það þig að dýpri manneskju fyrir vikið,“ segir hann. 

Högni segir það hafa verið afar áhugavert að heimsækja athvarfið og hitta fólk úr öðrum menningarheimi sem er að kljást við geðsjúkdóma. „Þetta er eina svona athvarfið í þessari stóru borg. Það var ótrúlega gaman að fá tækifæri til þess að fara þangað. Þetta er flott starf sem Rauði krossinn er að vinna þarna og mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að taka þátt í svona.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×