Lífið

Heimsendir helmingi stærri en Fangavaktin

Allt sem Vaktargengið hefur snert undanfarin misseri hefur breyst í gull. Jón Gnarr tekur ekki þátt í framleiðslu nýju þáttanna, en þó hefur verið skrifað fyrir hann lítið hlutverk.fréttablaðið/anton
Allt sem Vaktargengið hefur snert undanfarin misseri hefur breyst í gull. Jón Gnarr tekur ekki þátt í framleiðslu nýju þáttanna, en þó hefur verið skrifað fyrir hann lítið hlutverk.fréttablaðið/anton

„Þetta er svo stór sería. Það er alveg gríðarlegt magn af fólki sem birtist, við erum með heilan geðspítala,“ segir leikstjórinn Ragnar Bragason.

Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu vinna Ragnar og félagar hans í Vaktagenginu, þeir Pétur Jóhann Sigfússon, Jörundur Ragnarsson og Jóhann Ævar Grímsson að sjónvarpsþáttunum Heimsendir, sem gerast á geðsjúkrahúsi. Jón Gnarr, félagi þeirra, hefur öðrum hnöppum að hneppa þessa dagana, en þeir eru samt búinn að skrifa fyrir hann lítið hlutverk. „Nú þurfum við að semja við ritarann hans og sjá hvort það sé hægt að finna tíma til að fá hann í upptökur,“ segir Ragnar. „Það er ekki hægt að gera þetta án þess að það sjáist allavega í hann.“

Eru nýju þættirnir stærri en Fangavaktin?

„Ég myndi segja að Heimsendir væri helmingi stærri. En þættirnir gerast meira og minna allir á þessum spítala.“

Óvíst hvar þættirnir verða teknir upp, en upptökur hefjast í júní. Þættirnir verða svo frumsýndir á Stöð 2 í haust. Samstarf félaganna hefur verið gríðarlega farsælt, en þrátt fyrir það segir Ragnar það alls ekki vera auðvelt að byrja á nýjum þáttum.

„Síðast vorum við að byggja á grunni sem varð til i Næturvaktinni,“ segir hann. „Í þetta skipti erum við að búa til nýtt gallerí frá grunni. Rannsóknar- og forvinnan hefur verið mikil, sérstaklega út af umfjöllunarefninu. Við vorum að kynna okkur þennan heim; staðreyndir og hluti sem tengjast heimi þeirra sem glíma við geðsjúkdóma.“

Og hafið þið hitt geðsjúka í þessari vinnu?

„Mjög marga. Við erum búnir að hitta mjög marga sem hafa glímt við geðsjúkdóma og marga sem hafa unnið í þessu kerfi. Geðlækna, iðjuþjálfa, sálfræðinga – við erum búnir að vinna mjög mikla heimavinnu.“

Ragnar og félagar leita nú að stelpu á aldrinum 13 til 15 ára til að fara með eitt aðalhlutverkanna. „Hún á að leika dóttur Péturs Jóhanns,“ segir hann og bendir áhugasömum á að senda póst á stelpa@sagafilm.is.

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×