Fótbolti

Heimir: Vitum að við eigum helling inni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Heimir Hallgrímsson sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Annecy í morgun. Það gæti hentað íslenska liðinu vel að liggja til baka gegn Austurríki að hans sögn.
Heimir Hallgrímsson sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Annecy í morgun. Það gæti hentað íslenska liðinu vel að liggja til baka gegn Austurríki að hans sögn. Vísir/Vilhelm
Heimir Hallgrímsson var töluvert spurður út í það hvers vegna svo illa hefði gengið að halda boltanum innan liðsins í fyrstu tveimur leikjunum gegn Porúgal og Austurríki.

Heimir hefur raunar svarað þeirri spurningu áður en blaðamenn veltu því áfram fyrir sér enda sá tími sem okkar menn halda boltanum innan liðsins hér á EM mun minni en í stóru leikjunum í undankeppninni.

Heimir nefndi þrjár ástæður í viðtali við Vísi í gær og ítrekaði þær í dag. Önnur lið væru búnir að leikgreina okkur, taugarnar spili inn í og svo eru andstæðingarnir á EM einfaldega góðir. 

„One off“ í síðasta leik

Þá var Heimir spurður út í hvort áhyggjuefni væri að bæði mörkin sem Ísland hefur fengið á sig hefðu komið eftir uppspil hægra megin þar sem okkar menn sváfu á verðinum. Væru þeir að skoða þetta sérstaklega til að stoppa í götin?

„En, þetta var one off í þessum síðasta leik að við opnuðumst,“ sagði Heimir um markið sem Ísland fék á sig í lokin gegn Ungverjum. Hann vísaði í tölfræðina þar sem Íslendingar voru með boltann rúmlega 30 prósent í leiknum,“ sagði Heimir.

„Menn taka eitt lítið feilspor. Það eru engar áhyggjur í sambandi við varnarleikinn okkar, alls ekki.“

Það jákvæða væri að Ísland væri með tvö stig, ósigrað á EM og samt ekki að spila sinn besta leik. Liðinu liði samt vel að liggja til baka og vitandi að Austurríkismenn verða að vinna leikinn til að komast í sextán liða úrslit þá gæti það verið fínasta taktík að liggja til baka. Liðið vildi samt halda boltanum betur en í leikjunum til þessa.

„Við vitum samt að við eigum helling inni, vitum að við getum gert betur en hingað til.“

Heimir og Lars munu fara vel yfir leik Austurríkismanna á fundi með leikmönnum í kvöld. 

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur áFacebook,Twitterog Snapchat (sport365).




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×