Fótbolti

Heimir: Þarf að varast nánast allt hjá Króötum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Það er misjafnt eftir mönnum hvernig þeir tækla tapleiki. Ég á til að mynda mjög erfitt með það,“ segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari er hann var nýkominn á Maksimir-völlinn í fyrsta sinn síðan í tapleiknum hér árið 2013.

„Þó það hafi verið sárt þá lærðum við gríðarlega mikið á þessu tapi. Þannig á maður auðvitað að nýta sér tapleiki. Það var margt sem fór úrskeiðis í þeim leik. Þjálfararnir, umgjörðin og margt annað var ekki í lagi. Við erum klárlega búnir að bæta það og vonandi skilar það bættum leik hjá liðinu.“

Þjálfarinn gat ekki verið annað en heiðarlegur með að það væri ekkert sérstaklega gaman að koma aftur á þennan völl.

„Mér fannst þetta vera ljótur völlur og það var ekki góð tilfinning að koma hingað aftur. Ætlunin er að breyta tilfinningunni fyrir vellinum og kannski elska ég Zagreb þegar ég fer héðan,“ segir Heimir léttur.

Það hefur oftar en ekki nánast verið sjálfvalið í byrjunarlið landsliðsins en þannig er staðan svo sannarlega ekki núna og margir spenntir að sjá hvað Heimir ætlar að gera.

„Það hefur verið skrítið hversu oft við höfum getað stillt upp sama liði. Þetta er eðlilegt fyrir alla þjálfara að þurfa að breyta eitthvað milli leikja. Það er ekki erfitt. Það er fullt af góðum leikmönnum sem hafa verið fyrir utan og eru æstir í að fá að spila. Það hefur eiginlega verið leiðinlegt hvað þeir hafa fengið fá tækifæri. Við vissum samt alltaf að þeir væru tilbúnir og þeir munu mæta tilbúnir til leiks,“ segir Heimir en hann tilkynnir leikmönnum byrjunarlið sitt í dag sem hann segist vera búinn að velja.

„Það þarf að varast nánast allt hjá Króötunum. Þeir eru með leikmenn í góðum liðum í toppdeildum. Það eru mikil einstaklingsgæði og það má aldrei sofna eða missa einbeitingu í þessum leik. Þá munu þeir refsa. Þeir eru vel spilandi og munu halda boltanum vel. Við þurfum að vera þolinmóðir.“

Heimir brá á það ráð í Úkraínu að vera með skákmeistarann Margeir Pétursson á bekknum hjá sér og hann átti að þýða hvað landsliðsþjálfari Úkraínu, Andriy Shevchenko, var að segja. Hann býst ekki við því að vera með slíkan mann á bekknum í kvöld þó svo það sé aftur verið að spila fyrir framan tóman völl.

Sjá má viðtalið við Heimi í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Þessir gæjar kunna að refsa

Margir leikmenn íslenska landsliðsins fá í dag tækifæri til að hefna fyrir tapið á Maksimir-leikvanginum fyrir þremur árum í umspili um sæti á HM. Einn af þeim er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.

Feluleikur með Modric

Ante Cacic, landsliðsþjálfari Kró­atíu, neitaði að staðfesta á blaðamannafundi í gær að Luka Modric, miðjumaður Real Madrid, myndi verða í byrjunarliði Króata í kvöld.

Æfðu í rigningunni án Ara Freys

Allir leikmenn íslenska landsliðsins taka nú þátt í æfingu á Maksimir-vellinum fyrir utan Ara Frey Skúlason.

Kári: Mandzukic er ótrúlega útsjónarsamur

"Það er mjög góð stemning. Við eigum harma að hefna síðan við vorum hérna fyrir þrem árum síðan,“ segir varnarjaxlinn Kári Árnason en hann var þá að koma á Maksimir-völlinn í fyrsta sinn síðan Ísland tapaði hér í umspilsleik um laust sæti á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×