Skoðun

Heimilum blæðir, landbúnaður í bómull

Guðjón Sigurbjartsson skrifar
Helmingur heimilanna í landinu á í erfiðleikum með að ná endum saman og um tíu prósent okkar eru í alvarlegum vanskilum. Atvinnulífið getur ekki greitt hærri laun, meðal annars vegna erfiðs rekstrarumhverfis og gjaldmiðilsvanda. Launahækkanir umfram getu hækka bara verðlag og verðtryggðar skuldir. Þetta er alvöru ómöguleiki fyrir fólkið í landinu og mun alvarlegri og erfiðari en verkefnið að ljúka samningum við Evrópusambandið sem er nú bara þægileg innivinna.

Hvað er til ráða? Í McKinsey-skýrslunni og víðar eru upplýsingar um það sem gera þarf til að bæta lífskjörin í landinu. Meðal þess brýnasta er að taka á óhagkvæmni landbúnaðarins.

Landbúnaðurinn nýtur velvildar

Þeir njóta líka velvildar sem hafa lítið handa á milli og þeir sem standa höllum fæti. En það er ekki hægt að gera allt fyrir alla.

Landbúnaðurinn fær samt árlega frá neytendum hvorki meira né minna en 8 milljarða króna í formi tollverndar, það er markaðsverndar, samkvæmt OECD. Auk þess fær hann 12 milljarða frá skattgreiðendum í styrkjum á fjárlögum. Samtals eru þetta 20 milljarðar króna á ári, sem eru um þrjú prósent af opinberum útgjöldum. Það er þrisvar sinnum meira en meðaltalið í Evrópu þar sem opinn matvörumarkaður tryggir lág verð og gott framboð. Þessi vernd og styrkir eru með því mesta í heiminum og koma hart niður á efnaminni heimilum.

Ef bæta á lífskjör þarf breytingar

Opna þarf á tollfrjálsan innflutning matvæla og fella niður undanþágur landbúnaðarins frá samkeppnislögum. Við opnun aukast ráðstöfunartekjur meðalheimilis um 100 til 200 þúsund kr. á ári. Þetta kemur sér best fyrir þá efnaminni þar sem verja þarf stærstum hluta útgjaldanna í grunnþarfir og kaupmáttur ráðstöfunartekna eykst um að minnsta kosti 5 til 10%. Við opnun matvælamarkaðarins, með eða án inngöngu í ESB, opnast 550 milljóna manna innri markaður Evrópu fyrir okkar matvælaframleiðendum.

Á móti samdrætti í sumum greinum landbúnaðarins koma ný tækifæri. Innlend matvælavinnsla fær ódýrara innflutt hráefni, eins og hún hefur nýtt sér þegar kjúklinga, svínakjöt og smjör hefur skort hér innanlands. Við höfum reynslu af alþjóðlegum viðskiptum með matvæli. Sjávarútvegsfyrirtækin eru í raun matvælaframleiðendur í útflutningi. Bakkavör, glæsilegt 18.800 manna fyrirtæki, framleiðir gríðarlegt magn ferskra matarskammta daglega í Bretlandi og víðar um heiminn.

Upp munu vaxa fleiri alþjóðleg matvælafyrirtæki. Við getum líka, eins og mörg Evrópulönd, nýtt þekkingu og reynslu í landbúnaði til að hjálpa fólki í þróunarlöndum við að auka sína matvælaframleiðslu til eigin neyslu og útflutnings á Evrópumarkað og til okkar.

Lækka þarf styrki skattgreiðenda til landbúnaðarins um tvo þriðjuhluta niður í Evrópumeðaltalið. Styrkirnir myndu lækka úr 12 milljörðum í 4 milljarða á ári. Með þessari 8 milljarða lækkun útgjalda ríkisins mætti til dæmis lækka virðisaukaskattinn um 5 prósent. Lækkun virðisaukaskatts kemur á matvæli, föt og aðrar nauðsynjar og fleira og myndi líka koma þeim efnaminnstu best.

Skipuleggja þarf landnotkun til sveita og miða stuðning skattgreiðenda við nýtingu lands en ekki framleitt magn. Skilgreina þarf heppileg landsvæði til landbúnaðar meðal annars út frá fjarlægð frá þéttbýli og umhverfissjónarmiðum. Framleiðslutengdur stuðningur stuðlar að sóun þegar framleiðslan miðast við að fá styrki.

Sumir telja mikilvægt að hafa landbúnað sem víðast um landið, það styðji við þróun ferðaþjónustu og sé skemmtilegra þegar ferðast er um landið. Ósnortin náttúra hefur sérstakt aðdráttarafl fyrir marga. Ekki er öll byggð til prýði. Í opnu kerfi verða færri og stærri býli og ímynd greinarinnar mun stórbatna.

Sérhagsmunir fárra víki

Alþingi virðist máttlaust þegar kemur að breytingum sem gagnast hinum þögla meirihluta á kostnað háværra sérhagsmunahópa. Þeir sem hafa verið að beita sér fyrir breytingum á landbúnaðarkerfinu eru SA, SVÞ, FA, Neytendasamtökin, sumir fjölmiðlanna, Samkeppniseftirlitið og einstaklingar. Skilningur er að vaxa. Fleiri ættu að láta til sín taka og styðja nauðsynlegar breytingar. Sveitarfélög sem greiða framfærslustyrki, hjálparstofnanir sem sinna matargjöfum, verkalýðsfélög sem berjast fyrir bættum kaupmætti og fleiri einstaklingar sem sjá þörfina. Þessar breytingar eru nauðsynlegar og þær má gera af tillitssemi og með stuðningi við þá sem verða fyrir röskun.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×