Innlent

Heimilisofbeldi vandamál á 200 heimilum á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Um klukkan eitt í nótt fór lögregla á heimili í Kópavogi þar sem tilkynnt hafði verið um heimilisofbeldi og frelsissviptingu.

Lögregla fór einnig á heimili í Vesturbænum upp úr klukkan eitt vegna heimilisofbeldis og líkamsárásar. Í báðum tilvikum voru karlmenn á heimilinu handteknir og færðir í fangageymslu.

Heiða Björg Hilmisdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingar hefur starfað að undirbúningi ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkurborgar og segir mikilvægt að lögregla fjarlægi ofbeldismann þegar hún metur að það sé nauðsynlegt.

„Það atriði er mjög mikilvægt þegar lögregla metur það svo. Nú fer lögregla inn á þessi heimili þar sem hún er kölluð til og gerir áhættumat, sem er gríðarlega mikilvægt að sé gert. Og þegar lögregla metur svo að ofbeldismaðurinn sé það hættulegur að hann geti valdið meiri skaða þá er mjög mikilvægt að hann sé fluttur á brott. Áður var það algengara að fórnarlömbin voru flutt í burt. Okkur finnst þetta skref í rétta átt.“

Þann 12. janúar síðastliðinn hófst átak gegn heimilisofbeldi á höfuðborgarsvæðinu semhefur skilað sér í auknum fjölda tilkynninga til lögreglu en þeim hefur fjölgað úr tuttugu á mánuði í fimmtíu.

„Það er mjög jákvætt, sjálft átakið skapar ekki ofbeldi. Það sem er eað gerast er að  fólk hefur fengið meiri trú á kerfið, trú á það að þegar lögreglan er kölluð til þá gerist eitthvað.“

Talið er að heimilisofbeldi snerti 200 heimili í hverjum mánuði, það er mat lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og fleiri fagaðila.

„Það kemur á óvart hvað þetta eru mörg heimili. Þetta eru tvö heimili á dag á höfuðborgarsvæðinu þar sem lögregla er kölluð til en við vitum að það eru svo fleiri heimili þar sem ofbeldi er beitt.“

Ofbeldisvarnarnefnd borgarinnar tekur til starfa í haust og þá verður enn frekara átak gegn heimilisofbeldi. „Það á eftir að skipa í nefndina, en ég geri ráð fyrir að það verði byrjað á fræðslu um úrræði, ofbeldisvarnarnefnd mun vinna almennt gegn ofbeldi í borginni en þar sem mikið er um kynbundið ofbeldi verða áherslurnar mjög líklega eftir því.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×