Tíska og hönnun

Heilari og hönnuður hanna hringa

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Hönnuðir Iidem, Helga Mogensen skartgripahönnuður og Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fatahönnuður.
Hönnuðir Iidem, Helga Mogensen skartgripahönnuður og Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fatahönnuður. Vísir/Einkasafn
„Okkur langaði að gera eitthvað stílhreint og fagurt. Hringar hafa alltaf verið á sama stað á fingrinum, en við vildum gera hringa sem þú getur staflað út um allt og ráðið sjálf hvar á fingrinum þeir eru,“ segir Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fatahönnuður. Hún og samstarfskona hennar, Helga Mogensen skartgripahönnuður, gerðu saman skartgripalínuna Iidem.

Þær reka saman verslunina Kirsuberjatréð ásamt níu öðrum listamönnum, en hugmyndin að samvinnunni kviknaði þegar þær fóru saman í ferð til Akureyrar. „Við eyddum dágóðum tíma í bílnum á leiðinni og ræddum um ýmislegt, þá aðallega lífið og tilveruna.

mynd/Ingrid Karis
Helga er heilari og við höfum gaman af því að spjalla um andlega hluti. Þannig að við kynntumst mun betur en áður og urðum nánari,“ segir Kolbrún. „Út frá þessari „andlegu“ ferð kom upp sú hugmynd að við ættum að vinna saman að einhverju fallegu.“

Í línunni er að finna hringa úr messing, kopar og gegnheilu silfri. „Hringarnir eru í öllum stærðum, þannig að þú getur raðað þeim á fingurna að vild og haft þá hvar á fingrinum sem er,“ segir Kolbrún.Hringarnir eru eins og áður sagði úr messing, kopar og gegnheilu silfri. „Þeir eru fjölbreyttir en flestir mjög stílhreinir, en allir mismunandi. Silfurhringarnir eru bæði til snúnir og flatir.

Mynd Ingrid Karis
Suma erum við búnar að smíða, eða þannig að þeir eru flatir og þunnir. Það skemmir ekki fyrir að koparinn leiðir orku inn í líkamann og þess vegna gott að hafa hann með og blanda öllu saman.“ Kolbrún segir að nafnið á hringunum hafi vafist fyrir þeim.

„Við lágum lengi yfir nafninu, en á endanum kom það og við erum mjög ánægðar með það. Hringar sem ná ekki alveg niður á fingurinn eru kallaðir kjúkuhringar (knucklerings) og Iidem þýðir kjúka á latnesku. Okkur fannst orðið líka fallegt og það passaði vel.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×