Heilsa

Hef alltaf þraukað út mánuðinn

Birta Björnsdóttir skrifar
Steinþór Helgi Arnsteinsson hefur tekið þátt í Meistaramánuði frá upphafi.

„Þetta byrjaði fyrst sem keppni við vinina en svo er aðal markmiðið að skora sjálfan sig á hólm,“ segir Steinþór Helgi.

„Ég hef á hverju ári sleppt öllu áfengi og borðað eftir paleo-matarræðinu í Meistaramánuði. Ég hef svo ár hvert reynt að finna upp eitthvað nýtt og skemmtilegt til að takast á við, til dæmis að klippa oftar á mér neglurnar eða að heyra í mömmu minni einu sinni á dag.“

Steinþór segir það hafa gengið vel að framfylgja markmiðum sínum, í langflestum tilfellum.

„Mismunandi vel en hef alltaf náð að halda út í þessum aðal markmiðum. Eitt sinn reyndar ætlaði ég mér um of af lestri á bókum Halldórs Laxness, ég náði því ekki á mánuðinum, en var að því næsta hálfa árið á eftir. En annars hef ég alltaf náð að þrauka út mánuðinn ef svo má segja,“ segir Steinþór Helgi.

Steinþór segir þátttöku í meistaramánuði hafa smitandi áhrif.

„Já já, kærastan mín er með í þessu núna og vinir mínir hafa einnig smitast eftir að hafa frétt af þeim árangri sem ég hef náð í mánuðinum,“ segir Steinþór Helgi.


Tengdar fréttir

Ætlar að njóta augnabliksins

Sylvía Ósk Rodriguez hefur sett sér þrjú markmið í Meistaramánuði. Eitt markmiðanna er nokkurs konar framhald á markmiði sem hún setti sér í Meistaramánuði í fyrra en þá ákvað hún að borða engan sykur í mánuðinum. Hún hefur lést um þrjátíu kíló síðan.

5 bestu snjallsímaforritin fyrir skipulagðara líf

Heilsuvísir er búinn að taka saman 5 forrit sem þú getur hlaðið niður í símann þinn og hjálpa þér við að ná betri árangri í þeim verkefnum og markmiðum sem að þú ætlar að setja þér.

Mikilvægt að ætla sér ekki um of

Maður sér það of oft að fólk fer allt of geyst af stað og ætlar sér of mikið á stuttum tíma. Ansi margir gugna þá eftir nokkrar vikur og finnst þeir vera komnir á byrjunarreit.

Allir geta orðið meistarar

"Meistaramánuður er í raun lífstílsátak þar sem fólk á öllum aldri skorar sjálft sig á hólm og reynir að bæta sig á einhvern hátt. Allir sem eru tilbúnir að setja sér einhver markmið og fylgja þeim eftir í einn mánuð geta tekið þátt,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson, einn stofnenda Meistaramánuðar.

Allir með í Meistaramánuði

Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Þetta er svo mikil fíkn

"Ég verð örugglega bara sveittur og skjálfandi einhverstaðar úti í horni,“ segir verðandi meistarinn Bobby Breiðholt.

Gönguvænt umhverfi hvetjandi

Margir átta sig ekki á að lítil hversdagsleg hreyfing eins og stuttar gönguferðir geta skipt miklu máli fyrir heilsuna. Fyrir utan það er svolítið ósanngjarnt að bíll, þessi dýra fjárfesting, sé sjálfkrafa aðgöngumiði að borginni,“ segir Herborg sem fer flestra sinna ferða gangandi, hjólandi eða í strætó.

10 hollráð fyrir Meistarmánuð

Markmið er góð leið til þess að láta drauma sína og óskir rætast en það er ekki það sama að hugsa um markmiðin og að framkvæma þau.

Mikilvægur hlekkur að sýna sjálfum sér samkennd og vinsemd

Margir setja sér markmið í Meistaramánuði en til þess að ná þeim þarf að hafa jákvæða afstöðu til þeirra og temja sér sjálfsvinsemd. Borghildur Sverrisdóttir er höfundur bókarinnar Hamingjan eflir heilsuna sem kemur út síðar í mánuðinum. Hún segir jákvætt

Meistaramánuður á Twitter

Nú er Meistaramánuður að hefjast og einhverjir farnir að setja sér markmið. Því er tilvalið að skoða hvað Íslendingar höfðu að segja á Twitter í upphafi #meistaram.

Munaður í Meistaramánuði

Nú er Meistaramánuður og um að gera að setja sér háleit markmið, og auðvitað á það einnig við um ástarlífið.








×