Lífið

Hátt í 100 tónleikar á einu ári

Hljómsveitin FM Belfast hefur verið iðin við tónleikahald síðasta árið.
Hljómsveitin FM Belfast hefur verið iðin við tónleikahald síðasta árið.
„Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt en sömuleiðis strembið ár hjá okkur,“ segir Árni Rúnar Hlöðversson, einn af meðlimum FM Belfast. Sveitin er á sínu síðasta tónleikaferðalagi á árinu en hún hefur komið víða við og hefur haldið hátt í 100 tónleika á árinu. Þegar Fréttablaðið náði tali af Árna var hann að koma sér fyrir á hótelherbergi í Hollandi ásamt hinum í sveitinni.

„Ég get ímyndað mér að þetta sé svipað og að vinna sem sjómaður, alltaf að túra,“ segir Árni hress en er ekki alveg með á hreinu hversu mörg lönd þau eru búin að sækja heim. „Það er góð spurning, við erum búin að spila á tónleikahátíðum og fara oft til Þýskalands, Frakklands og Hollands. Svo erum við líka búin að spila í Noregi, Danmörku, Belgíu, á Spáni og núna bætum við Grikklandi og Tyrklandi á listann,“ segir Árni en ferðalögin hafa ekki gengið áfallalaust fyrir sig.

„Við höfum fjórum sinnum týnt farangrinum. Endurheimtum hann reyndar alltaf en það er orðið erfitt að afhenda farangurinn á flugvöllum því við höfum brennt okkur á því. Um daginn þurftum við meira að segja að spila með græjum sem við keyptum samdægurs og einni tölvu sem ég var með í handfarangri því að farangurinn fór á vitlausan stað. Svo var Lóa bitin af könguló í sumar,“ rifjar Árni upp.

Sveitin kemur heim í næstu viku og hefst þá handa við að leggja drög að nýju plötunni sinni. „Við ætlum að vera í fríi og einbeita okkur að lagasmíðum. Það er sko kærkomið frí og ef við höldum tónleika yfir jólin verður það eitthvað lítið. Platan kemur út í byrjun árs og við stefnum á að fylgja henni eftir næsta vor,“ segir Árni.- áp





Fleiri fréttir

Sjá meira


×