Innlent

Hátt á þriðja hundrað koma að aðgerðum í Sveinsgili

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ástæða þess að búið er að kalla út svo marga björgunarsveitarmenn er einfaldleg sú að "manna þarf skóflurnar.“
Ástæða þess að búið er að kalla út svo marga björgunarsveitarmenn er einfaldleg sú að "manna þarf skóflurnar.“ Vísir/Loftmyndir
Búið er að kalla út björgunarsveitarmenn úr öllum björgunarsveitum frá Akranesi í vestri að Kirkjubæjarklaustri í austri til þess að koma að aðgerðum í Sveinsgili. Þar er nú leitað að erlendum ferðamanni sem féll í gegnum snjóbrú yfir ána í gilinu. Um 250-280 björgunarsveitarmenn koma nú að aðgerðum.

Aðstæður á svæðinu eru afar erfiðar. Mjög snjóþungt er og vinna björgunarsveitarmenn nú að því að grafa sig í gegnum snjóbrúna í átt að manninum.

Leitarsvæðið er mjög þröngt og hafa björgunarsveitarmenn farið ferðir upp og niður ána auk þess sem að drónum hefur verið beitt. Er talið að maðurinn sé undir snjóbrúni.

Ekki virðist hægt að ná til mannsins án þess að grafa sig í gegnum snjóbrúna og notast björgunarsveitarmenn m.a. við keðjusagir til þess að grafa í gegnum snjóinn. Ástæða þess að búið er að kalla út svo marga björgunarsveitarmenn er einfaldlega sú að „manna þarf skóflurnar“ líkt og talsmaður björgunarsveitarmanna á vettvangi komst að orði.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um eftir að tilkynning barst um slysið um klukkan 18 í dag. Maðurinn var á ferð með öðrum manni á leið yfir snjóbrúna þegar þeir féllu báðir niður um hana. Annar þeirra komst sjálfur upp og gat tilkynnt um óhappið. Þyrlan er enn á vettvangi og mun aðstoða björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila, meðal annars með því að ferja mannskap og búnað.

Einnig hafa kafarar frá Landhelgisgæslunni verið sendir á vettvang. Nokkuð erfitt fjarskiptasamband er á staðnum auk þess sem að veður hefur versnað með kvöldinu og er mikil rigning á svæðinu.


Tengdar fréttir

Féll niður um snjóbrú

Aðstæður eru nokkuð erfiðar í Sveinsgili en leitað er að manni sem féll í ánna fyrr í kvöld.

Féll í á við Sveinsgil

Björgunarsveitirnar frá Hellu að Kirkjubæjarklaustri voru kallaðar út vegna manns sem féll í á við Sveinsgil fyrr í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×