Íslenski boltinn

Harpa með þrennu í stórsigri Íslands á Möltu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennur.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennur. Mynd/KSÍ
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann stórsigur, 8-0, á slöku liði Möltu ytra í undankeppni HM 2015 í dag. Leikurinn var aldrei spennandi og okkar stelpur mun betri á öllum sviðum.

Markaveislan hófst strax á annarri mínútu þegar Harpa Þorsteinsdóttir var ein á auðum sjó í teignum og skoraði af yfirvegun. Harpa enn sjóðheit fyrir framan markið eftir að enda sem markadrottning og Íslandsmeistari með Stjörnunni síðasta sumar.

Dóra María Lárusdóttir, sem lék í stöðu hægri bakvarðar í dag, bætti við öðru marki Íslands á 15. mínútu en hún smurði boltanum í samskeytin beint úr aukaspyrnu, samkvæmt beinni lýsingu KSÍ á Facebook-síðu sambandsins.

Íslensku stelpurnar bættu við tveimur mörkum áður en flautað var til hálfleiks. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði annað mark sitt og þriðja mark Íslands á 23. mínútu og Dagný Brynjarsdóttir, sú er tryggði Íslandi sigur gegn Ísrael um síðustu helgi, skoraði fjórða markið á 33. mínútu.

Dagný sneiddi boltann með höfðinu í netið eftir fallega aukaspyrnu Dóru Maríu frá hægri en mörk Íslands í fyrri hálfleik voru öll nokkuð lagleg og mikil gæði í þeim.

Rakel Hönnudóttir komst í dauðafæri eftir undirbúning FanndísarFriðriksdóttur undir lok fyrri hálfleiks en eftir 15 mínútur í þeim síðari fullkomnaði Harpa Þorsteinsdóttir þrennuna er hún kom Íslandi í 5-0.

Harpa fékk boltann við vítateigshornið eftir innkast frá ÓlínuViðarsdsóttur. Hún snéri sér við og skoraði í nærhornið með skoti sem markvörðurinn hefði líklega átt að verja.

Fanndís Friðriksdóttir skoraði svo sjötta mark Íslands á 64. mínútu eftir samspil við Hörpu sem fór mikinn í leiknum í dag. Hún var tekin af velli skömmu síðar eins og Rakel Hönnudóttir en Guðmunda Brynja Óladóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir komu inn á í þeirra stað.

Stelpurnar voru ekki hættar að skora því Selfyssingurinn Guðmunda Brynja Óladóttir bætti við sjöunda marki Íslands á 87. mínútu en þetta er jafnframt hennar fyrsta landsliðsmark í hennar þriðja landsleik.

Í uppbótartíma skoraði Dagný Brynjarsdóttir svo annað mark sitt og áttunda mark Íslands. Lokatölur, 8-0.

Fín uppskera í vikunni hjá stelpunum sem unnu Ísrael og Möltu án þess að fá á sig mark en mikið sjálfstraust er í liðinu eftir gott gengi á Algarve-bikarnum. Stelpurnar eru nú búnar að vinna fimm leiki í röð í öllum keppnum.

Ísland er með níu stig í öðru sæti þriðja riðils í undankeppni HM 2015, sex stigum á eftir Sviss sem hefur leikið fimm leiki. Ísland er búið með fimm leiki.

Næst taka við erfiðir útileikir gegn Sviss og Danmörku.

Ísland (4-3-3): Guðbjörg Gunnarsdóttir; Dóra María Lárusdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir; Katrín Ómarsdóttir (Ásgerður Stefanía Baldursdóttir 78.), Sara Björk Gunnarsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir; Fanndís Friðriksdóttir, Rakel Hönnudóttir (Guðmunda Brynja Óladóttir 67.), Harpa Þorsteinsdóttir (Hólmfríður Magnúsdóttir 67.).


Tengdar fréttir

Freyr gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Möltu ytra kl. 12 í undankeppni HM 2015. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu sem mætti Ísrael um síðustu helgi.

Erum sterkari en Malta á öllum sviðum

„Það fer vel um okkur hérna,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, í samtali við Fréttablaðið en í hádeginu að íslenskum tíma spila stelpurnar okkar við lágt skrifað lið Möltu í undankeppni HM 2015 ytra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×