Sport

Haraldur Nelson segir einni stærstu stjörnu UFC til syndanna fyrir steranotkun

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Brock Lesnar fær að heyra það frá Haraldi Nelson.
Brock Lesnar fær að heyra það frá Haraldi Nelson. vísir/getty
UFC staðfesti í gær að bardagakappinn Brock Lesnar féll á öðru lyfjaprófi, en hann sneri aftur í búrið eftir fimm ára fjarveru í byrjun júlí og vann Mark Hunt í þungavigtarbardaga á UFC 200 bardagakvöldinu.

Ónefnt lyf, sem flestir UFC-spekingar eru sammála um að séu einfaldlega sterar, fannst í lyfsýni Lesnars sem tekið var sama kvöld og hann lagði Hunt í Las Vegas. Sama efni fannst í lyfsýni sem var tekið fyrir bardagann 28. júní. UFC segir í yfirlýsingu sinni að bandaríska lyfjaeftirlitið mun sjá um málið og ákveða refsingu Lesnars.

Brock Lesnar er 39 ára gamall bardagakappi sem er einn sá allra stærsti og vinsælasti í Bandaríkjunum en hann er fyrrverandi háskólameistari í glímu, hefur um langa hríð verið stjarna í WWE fjölbragðaglímunni auk þess sem hann hefur barist níu sinnum í UFC og unnið sex sinnum.

Hann hefur lengi verið grunaður um steranotkun en nú er stóra spurningin hvað verður gert við verðlaunafé Lesnars. Hann fékk 2,5 milljónir dala eða 300 milljónir króna fyrir sigurinn, en aldrei áður hefur UFC-bardagamaður fengið svo mikið fyrir einn bardaga. Ekki einu sinni Conor McGregor. Það segir sitt um vinsældir Lesnars og hversu mikið áfall þetta er fyrir UFC.

Brock Lesnar er ekkert eðlilega hrikalegur.vísir/getty
Ha? Er hann á sterum?

Mark Hunt, maðurinn sem Lesnar vann í umræddum bardaga 9. júlí, heimtaði að fá helming verðlaunafés Lesnars þegar ljóst var að hann svindlaði. Hann sagði UFC að leysa sig undan samningi ef hann fengi ekki helminginn. Hunt skipti síðan um skoðun og heimtar nú allar 300 milljónirnar sem UFC ætlar að borga Lesnar.

Haraldur Dean Nelson, faðir og annar umboðsmanna Gunnars Nelson, fremsta bardagakappa Íslendinga, hefur látið heyra í sér á samfélagsmiðlum um þetta mál.

Haraldur hefur um langa hríð, líkt og sonur sinn, talað gegn árangursbætandi efnum sem og of miklum niðurskurði á líkamsþyngd fyrir bardaga en hann getur stundum verið nær ómannlegur.

„Í alvöru? Er hann á sterum (e. juice)? Í öðrum sláandi fréttum þá er vatn blautt, eldur er heitur og himininn er blár,“ skrifaði Haraldur á Twitter-síðu sína en honum komu þessar fréttir augljóslega ekkert á óvart.

Haraldur heimtar líka að menn fái ekki lengur einhver fjögurra mánaða bönn fyrir „augljósa steranotkun“ og líkir því við að mæta vopnaður í búrið. „Myndi Lesnar fá borgað ef hann smyglaði hníf inn í búrið?“ spyr Haraldur Dean Nelson.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×