Fótbolti

Hannes: Var möguleiki að fá eitthvað út úr þessu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
„Við áttum ekki að tapa þessum leik,“ sagði Hannes Þór Halldórsson markvörður Íslands eftir 2-0 tapið í Króatíu í kvöld.

„Við vissum að þeir eru góðir. Þeir eru með frábært lið. Þetta var líklega ekki þeirra besti dagur og við vorum góðir framan af. Það voru möguleikar að fá eitthvað út úr þessu.“

Króatía skoraði nokkuð gegn gangi leiksins í fyrri hálfleik þar sem Hannes hefði þurft að taka eitt skref til hægri til að geta náð til boltans.

„Þeir voru ekki búnir að fá neitt. Skotið var fínt hjá honum. Ég sé boltann seint og var aðeins of lengi að bregðast við. Kannski á mínum besta degi hefði ég hugsanlega getað gert eitthvað í þessu,“ sagði Hannes.

Ekkert er hægt að setja út á Hannes í seinna markinu og skotið óverjandi.

„Það var vel gert hjá honum. Það var komið í uppbótartíma og langsótt að við næðum einhverju út úr þessu.

„Þeir koma á okkur eins og þeir eru góðir í. Þegar við erum komnir framarlega þá eru þeir flinkir.“

Ísland fékk margar góðar sóknir í fyrri hálfleik og vantaði herslumuninn að liðið næði að skapa sér dauðafæri og skora.

„Mér fannst við byrja mjög vel. Við getum tekið það út úr þessum leik. Við höfum náð í mörg frábær úrslit gegn góðum liðum í gegnum tíðina og Króatar eru með mjög gott lið og sýndu að þeim er alvara í þessari keppni.

„En við hefðum getað tekið punkt út úr þessu. Það hefði verið spennandi að sjá hvað hefði gerst ef við hefðum náð að setja á þá snemma leiks.

Íslandi gekk ekki eins vel að halda boltanum í seinni hálfleik og þeim fyrri og virtist liðið hreinlega þreytast við erfiðar aðstæður.

„Við náðum ekki að vera alveg nógu ákveðnir. Þeir fá líka sinn besta leikmann inn á (Luka Modric). Hann nær að stjórna aðeins betur spilinu. Þá ná þeir að vera aðeins rólegri með forystuna. Þetta var upp í móti í seinni hálfleik,“ sagði Hannes.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×