Tíska og hönnun

Hannar fyrir Gucci

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Will.i.am
Will.i.am Vísir/getty
Rapparinn Will.i.am hefur gengið frá samstarfssamningi við lúxusmerkið Gucci, en hann ætlar að hanna með þeim snjallúr.

Úrið verður sambærilegt iWatch frá Apple og það verður hægt að nota það sem síma, taka með því myndir, senda smáskilaboð og tölvupóst. „Saman ætlum við að þróa tæki sem er bæði „fashionable“ og „technological“ og einstakt á markaðnum.

Frá upphafi höfum við haft orðið „fashionology“ að leiðarljósi, þar sem orðin tvö sameinast í það sem þetta samstarf mun standa fyrir,“ segir rapparinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×