Formúla 1

Hamilton: Ég var ekkert sérstaklega að leita eftir ráspól

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þrír hröðustu menn dagsins á Sochi brautinni.
Þrír hröðustu menn dagsins á Sochi brautinni. Vísir/Getty
Nico Rosberg náði í mikilvægan ráspól í Rússlandi í dag. Titilbaráttan lifir enn ágætu lífi. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Ég er afar kátur. Þetta hefur verið erfið helgi vegna rigninganna sem settu strik í reikninginn á æfingum,“ sagði kampakátur Rosberg.

„Tímatakan gekk virkilega vel, ég fann gott jafnvægi í bílnum, við urðum að giska aðeins en það gekk allt upp að lokum. Mér leið vel og ég náði góðum hringjum,“ bætti Rosberg við.

„Það er ekki svo slæmt að vera annar á ráslínu hér. Ég var ekkert sérstaklega að leitast eftir því að ná ráspól enda fann ég það á Suzuka hvað það var gamana að taka fram úr á fyrsta hring,“ sagði Lewis Hamilton á Mercedes sem ræsir annar á morgun.

„Við virðumst vera betri en Ferrari hér. Það er gott að vera þriðji. Auðvitað hefur helgin verið erfið en við gátum notað þriðju æfinguna, eða hluta af henni, vel. Tímatakan gekk vel, við náðum að setja saman góða hringi aftur og aftur,“ sagði Valtteri Bottas sem ræsir þriðji á Williams á morgun.

„Ég er ekki fullkomlega sáttur. Ég held að þriðja sætið hafi verið möguleiki. Við munum geta barist við Williams á morgun. Við erum með mjög góðan bíl svo keppnin ætti að verða góð,“ sagði Sebastian Vettel sem ræsir fjórði á morgun.

„Bolirnir eru uppi,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes. Liðið verður heimsmeistari bílasmiða um helgina ef það fær að lágmarki þremur stigum meira en Ferrari.

„Við getum þóst á morgun, þykjumst bara að þeir birtist hérna og að við höfum ekki látið prenta þá. Ég veit það er ekki góðs viti að tala um þá daginn fyrir keppni, en að endingu vonum við að við fáum að fara í þá,“ bætti Woff við.

„Ég gerði ekki bara mistök, umferðin var líka að þvælast fyrir mér,“ sagði Felipe Massa á Williams sem ræsir 15. á morgun.

Hér fyrir neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Rosberg á ráspól í Rússlandi

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í tímatökunni á Sochi brautinni í dag. Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Rosberg: Titilbaráttan er ekki búin

Nico Rosberg hefur ekki gefist upp á að verða heimsmeistari ökumanna í ár. Bilið milli hans og liðsfélaga hans hjá Mercedes Lewis Hamilton er breikkaði í síðustu keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×