Fastir pennar

Hálaunafólk án jarðtengingar

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Falskur hljómur er í undrun Samtaka atvinnulífsins á því launaskriði sem hér hefur átt sér stað hjá stjórnendum og millistjórnendum.

Ef einhver á að vera með puttann á púlsinum þegar kemur að launaþróun þá eru það einmitt Samtök atvinnulífsins, sem í kjarasamningum fara með samningsumboð fyrir stóran hluta fyrirtækja í landinu.

Þá getur tæpast talist annað en útúrsnúningur að halda því fram að launahækkanir forstjóra og millistjórnenda í fyrirtækjum síðustu ár séu svipaðar og jafnvel minni en nemi almennri launaþróun í landinu, jafnvel þótt hlutfallsleg hækkun sé svipuð, um 45 prósent á móti 43 prósentum, frá árinu 2006.

Fjörutíu og fimm prósenta hækkun á hundrað þúsund krónur skilar 45 þúsund krónum. Sama hækkun á milljón skilar hálaunamanninum 450 þúsund krónum.

Samt er inntakið í tilkynningu sem Samtök atvinnulífsins sendu frá sér á mánudag að launaþróunin hafi verið með áþekkum hætti. Samt er annar að fá rúmlega 400 þúsund krónum meiri hækkun en hinn.

Er hækkunin áþekk? Nei.

Er þetta hópurinn sem í mestri þörf var fyrir kjarabót? Nei.

Venjulegu fólki hlýtur að ofbjóða þegar upplýsist að stjórnendur og millistjórnendur fyrirtækja þessa lands hafi á síðasta ári skammtað sér og sínum margfaldar launahækkanir á við þær sem öðrum standa til boða; hækkanir upp á tugi ef ekki hundruð þúsunda á mánaðarlaunin.

Á sama tíma hömruðu samtök þessara fyrirtækja á því í sjónvarpsauglýsingum fyrir síðustu kjarasamninga að launþegar yrðu að stilla kröfum sínum í hóf til þess að tryggja hér verðstöðugleika.

Ekki er laust við að sú hugsun leiti á að þessum sömu fyrirtækjum sé kannski illa stjórnað, af fólki sem ekki kann fótum sínum forráð í græðgi sinni.

Héldu stjórnendur íslenskra fyrirtækja að það tæki enginn eftir því hvaða laun þeir skammta sér?

Eða er jarðtengingin svo lítil að fólki finnist bara allt í lagi að skammta sér launahækkanir sem nema tvö- og þreföldum mánaðarlaunum verkafólks í landinu.

Það liggur í hlutarins eðli að ætli menn að halda áfram að moka undir rassgatið á hálaunafólki þá þarf hinn almenni launamaður að fá eitthvað í sinn hlut líka.

Holur hljómur er þá í ákalli um að allur almenningur axli ábyrgð á verðlagsþróun í landinu og sætti sig við lág laun.

(Verðlagsþróun sem hvort eð er ræðst að mestu af öðrum hlutum, svo sem hrávöruverði í útlöndum, verði á olíu og öðrum innflutningi, í takti við dynti örmyntarinnar sem hér er haldið úti.).

Í þessum tölum um launaskrið stjórnenda, sem í hámæli komust í tengslum við birtingu álagningarskráa skattsins, endurspeglast líka það óréttlæti sem felst í að semja um prósentuhækkanir launa.

Hví skyldi sá sem er með hæstu launin fá mestu hækkunina og sá minnst sem lægstu launin hefur.

Mætti velta fyrir sér krónutöluhækkun á línuna? Eða er þar gengið of freklega á hlut þeirra sem mest fá?






×