Skoðun

Hættumerki í heilbrigðiskerfinu

Ingunn Bjarnadóttir Solberg skrifar
Óánægja lækna með laun og starfskjör fer hátt þessa dagana og þeir hafa gripið til aðgerða sem hafa mikil áhrif. Að mínu mati hefur þessi óánægja kraumað undir yfirborðinu í fjölda ára og kemur ekki á óvart að nú hafi soðið upp úr. Vorið 2010 var gerð rannsókn meðal allra starfandi lækna á Íslandi, þar sem 61 prósent svaraði. Sama ár var gerð rannsókn meðal 1.500 norskra lækna þar sem 67 prósent svöruðu. Strax þá sáust ýmis hættumerki um slæmt ástand heilbrigðiskerfisins á Íslandi, slæmar vinnuaðstæður, slæm launakjör og óánægju í starfi miðað við starfsbræður í Noregi.

Rannsóknir hafa sýnt að líkur á að upplifa kulnun, að hætta að vinna sem læknar og að flytja af landi brott er meiri hjá læknum sem eru óánægðir í starfi en hinum. Einnig eru tengsl milli starfsánægju lækna og ánægju sjúklinga og gæða heilbrigðisþjónustu.

Flestir læknar á Íslandi (77 prósent) upplifðu að sparnaðarráðstafanir í kjölfar kreppunnar hefðu áhrif á vinnu þeirra. Þetta hafði neikvæð áhrif á starfsánægju þeirra. Margir sérfræðilæknar (63 prósent) svöruðu að áhyggjur af eigin fjárhag væru streituvaldandi að litlu, einhverju eða miklu leyti. Því meiri sem streituvaldandi áhyggjur voru af eigin fjárhag því meiri líkur voru á því að sérfræðilæknar hefðu hugleitt að flytja og starfa erlendis. 63 prósent sérfræðilækna höfðu hugleitt að flytja og starfa erlendis og 4 prósent sögðust flytja utan á næstu tveimur árum. Þeir sérfræðilæknar sem störfuðu erlendis í fríum voru fimm sinnum líklegri til að hafa hugleitt að flytja og starfa erlendis. Læknar sem voru óánægðir í starfi voru líka líklegri til að hafa hugleitt þetta.

Tími til að forgangsraða

Hvað varðar starfsánægju íslensku læknanna voru þeir óánægðari en norskir læknar. Stærsti munurinn var varðandi launin, íslensku læknarnir voru miklu óánægðari með launin. Einnig var verulegur munur á ánægju með möguleika eða tækifæri til að nota eigin hæfileika í vinnunni og vinnutíma. Íslensku læknarnir voru líka óánægðari með vinnuaðstæður og viðurkenningu fyrir góða vinnu. Yngri læknar á Íslandi voru óánægðari í starfi en eldri. Streita tengd því að ná jafnvægi milli heimilis og vinnu var há meðal íslensku læknanna og þetta hafði áhrif á starfsánægju þeirra.

Þetta var árið 2010, öllum má vera ljóst að ekki er staðan betri í dag fjórum árum síðar. Því er ljóst að kominn er tími til að forgangsraða læknum og heilbrigðiskerfinu í hag – annars tapa allir.

(Greinar úr rannsókninni: Solberg IB, Tómasson K, Aasland O, Tyssen R. The impact of economic factors on migration considerations among Icelandic specialist doctors: a cross-sectional study. BMC Health Serv Res 2013; 13: 524.

Solberg IB, Tómasson K, Aasland O, Tyssen R. Cross-national comparison of job satisfaction in doctors during economic recession. Occup Med (Lond) 2014. doi:10.1093/occmed/kqu114.)




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×