Innlent

Hæstiréttur staðfestir stórfelld umboðssvik Páls

Birgir Olgeirsson skrifar
Páll Heimisson í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Páll Heimisson í Héraðsdómi Reykjavíkur. vísir/GVA
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Páli Heimissyni sem var sakfelldur fyrir stórfelld umboðssvik. Páll var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, í Héraðsdómi Reykjavíkur í október árið 2013 fyrir stórfelld umboðssvik með því að misnota kreditkort sem hann hafði til umráða sem starfsmaður íhaldshóps Norðurlandaráðs. Með kreditkortinu greiddi Páll fyrir vörur og utanlandsferðir fyrir rúmar nítján milljónir króna. Tólf af þessum milljónum voru teknar út úr hraðbanka.

Hæstiréttur sagði Pál ekki hafa með nokkru móti gert grein fyrir einstökum ráðstöfunum á fjármunum þeim, er málið varða, sem að stórum hluta voru úttekti hans á reiðufé úr hraðbönkum hér á landi. Ákvað Hæstiréttur að staðfesta sakfellingu Páls vegna þess en að öðru leyti með vísan til forsenda dóms Héraðsdóms Reykjavíkur.

Hins vegar ákvað Hæstiréttur Íslands að vísa kröfu Sjálfstæðisflokksins, um að Páll greiði flokknum nítján milljónir til baka vegna brotanna, frá héraðsdómi. Var það mat Hæstaréttar að hvorki verðið ráðið að Sjálfstæðisflokkurinn hafi endurgreitt þá fjármuni, sem krafan tekur til, né að honum hafi verið falið málsóknarumboð til innheimtu þeirra. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði hins vegar áður dæmt Pál til að greiða Sjálfstæðisflokknum þessa fjármuni til baka.

Í ákæru embættis sérstaks saksóknara gegn Páli kom fram að hann notaði kreditkortið í sextán löndum á rúmlega tveggja ára tímabili og ferðaðist um þrettán Evrópulönd á tímabilinu að meðtöldu Íslandi; Danmörku, Svíþjóð, Bretland, Holland, Frakkland, Þýskaland, Austurríki, Tékkland, Króatíu, Ungverjaland, Kýpur og Rússland. Þá fór hann einnig til Líbanon, New York í Bandaríkjunum og Peking, höfuðborgar Kína.

Vísaði í játningu í tölvubréfi

Morgunblaðið
sagði frá því að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hefði sagt við réttarhöld í málinu í Hæstarétti að Páli hefði ekki tekist að sýna fram á neina heimild fyrir þessari notkun á kortinu. Þá vísaði Helgi Magnús einnig í tölvubréf sem Páll ritaði framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins þar sem hann sagðist taka fulla ábyrgð á þeim misgjörðum sem hann hafði orðið uppvís að. Engu að síður neitaði Páll sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Morgunblaðið hafði eftir verjanda Páls, Birni L. Bergssyni, úr Hæstarétti að Páll hefði verið svo meðvirkur á þeim tíma sem tölvubréfið var ritað að hann hefði verið reiðubúinn að taka allt málið á sig.


Tengdar fréttir

Mál Páls tekið fyrir í Héraðsdómi

Í dag hófst aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknar gegn Páli Heimissyni, fyrrverandi starfsmanns flokkahóps íhaldsmanna í Norðurlandaráði.

Páll áfrýjar til Hæstaréttar

Páll Heimisson greiddi fyrir vörur og utanlandsferðir fyrir rúmlega 19 milljónir króna á kostnað SJálfstæðisflokksins.

Lét íhaldsflokkana borga dýran fatnað

Ákæran á hendur Páli Heimissyni, fyrrverandi starfsmanni í Valhöll, virðist leiða í ljós að hann hafi ferðast um heim allan og lifað hátt í tvö ár á kostnað norrænu íhaldsflokkanna. Hann tók tólf milljónir í reiðufé út úr bönkum á 26 mánuðum.

Páll Heimisson neitaði sök

Páll Heimisson, sem hefur verið ákærður fyrir stórfelld umboðssvik, neitaði sök við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann er grunaður um að hafa misnotað kreditkort íhaldshóps Norðurlandaráðs, meðal annars í dýrum fataverslunum, skartgripabúðum og á veitingastöðum um allan heim.

Dæmdur fyrir að misnota kreditkort

Páll Heimisson var í dag dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að misnota kreditkort sem starfsmaður íhaldshóps Norðurlandaráðs. Níu mánuðir eru skilorðsbundnir. Þarf að endurgreiða Sjálfstæðisflokknum rúmar nítján milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×