Fótbolti

Hægt að fá miða á EM með afslætti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íslendingar munu örugglega fjölmenna til Frakklands.
Íslendingar munu örugglega fjölmenna til Frakklands. Vísir/Vilhelm
EM hefst í Frakklandi eftir rúman mánuð og þrátt fyrir mikla aðsókn í miða á leiki keppninnar er enn hægt að verða sér út um miða, samkvæmt frétt á heimasíðu UEFA.

Miðar með skertu útsýni eru nú til sölu með 25 prósenta afslætti en fjöldi miða sem eru til sölu er mismunandi eftir leikjum og leikstöðum.

Búast má við um sjö þúsund Íslendingum á hverjum leik okkar manna í keppninni en Ísland hefur keppni gegn Portúgal í St. Etienne þann 14. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×