Fótbolti

Gylfi: Verð sáttur hvar sem ég spila á vellinum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Ég man vel eftir því að hafa verið inn í klefa hérna eftir leikinn fyrir þrem árum síðan. Maður gleymir því ekkert,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson um tilfinninguna að koma aftur á Maksimir-völlinn í Zagreb.

„Þetta var sárt og það sást á öllum leikmönnum að við vorum algjörlega í molum. Við vorum svo nálægt því að komast á HM. Eftir á að hyggja þá styrkti þetta okkur og við komum tvíefldir til baka.“

Ísland og Króatía eru með sama stigafjölda á toppi riðilsins og það er því mikið undir í kvöld.

„Ef við náum að vinna komumst við í ansi góða stöðu. Það styttist í markmiðið sem er að komast til Rússlands,“ segir Gylfi en einhverjir hafa kallað eftir því að hann verði í fremstu víglínu í dag.

„Það væri allt í lagi. Heimir er nógu fær um að taka rétta ákvörðun. Hver svo sem hún verður. Ég er alveg til í að spila frammi því þá fæ ég fleiri færi til þess að skora. Ég verð sáttur hvar sem ég spila á vellinum.“

Það verða engir áhorfendur í stúkunni og það í annað sinn hjá íslenska liðinu í undankeppninni.

„Þetta er mjög skrítið. Það var mjög skrítið að spila í Úkraínu. Þetta var eins og æfingaleikur hjá góðu varaliði. Það er mikið undir og því er skrítið að hafa ekki neina áhorfendur,“ segir Gylfi en hann var ánægður með æfingabúðirnar á Ítalíu fyrir leikinn.

„Við æfðum vel í Parma og það fór vel um okkur. Hefði mátt vera aðeins heitara. Þetta var stutt ferðalag fyrir flesta og við erum í fínum málum. Við stefnum alltaf á þrjú stig en við vitum að Króatar eru með hörkulið. Það væri frábært að ná góðum úrslitum í þessum leik.“

Sjá má viðtalið við Gylfa í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Þessir gæjar kunna að refsa

Margir leikmenn íslenska landsliðsins fá í dag tækifæri til að hefna fyrir tapið á Maksimir-leikvanginum fyrir þremur árum í umspili um sæti á HM. Einn af þeim er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.

Heimir: Þarf að varast nánast allt hjá Króötum

"Það er misjafnt eftir mönnum hvernig þeir tækla tapleiki. Ég á til að mynda mjög erfitt með það,“ segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari er hann var nýkominn á Maksimir-völlinn í fyrsta sinn síðan í tapleiknum hér árið 2013.

Feluleikur með Modric

Ante Cacic, landsliðsþjálfari Kró­atíu, neitaði að staðfesta á blaðamannafundi í gær að Luka Modric, miðjumaður Real Madrid, myndi verða í byrjunarliði Króata í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×