Lífið

Gwen Stefani og Corden saman á rúntinum: Leynigestir af dýrari gerðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegur rúntur
Skemmtilegur rúntur vísir
Þáttastjórnandinn James Corden fer reglulega á rúntinn með þekktu tónlistarfólki og er þá ávallt um að ræða vinsæla dagskráliðin Carpool Karaoke í þættinum The Late Late show with James Corden.

Á dögunum skellti hann sér á rúntinn með söngkonunni Gwen Stefani, sem gerði garðinn frægan með sveitinni No Doubt.

Þau tóku nokkur skemmtileg lög saman og fór Corden að vana á kostum. Vanalega er aðeins tónlistarmaðurinn með í för en að þessu sinni sótti Corden leikarana George Clooney og Julia Roberts og komu þau með í för. Hér að neðan má sjá útkomuna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×