Fótbolti

Gunnar fékk á sig tvö mörk í Luzern

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eftir frábæra byrjun í undankeppni HM 2018 hefur aðeins fjarað undan Færeyingum.

Færeyjar fengu fjögur stig út úr fyrstu tveimur leikjunum í undankeppninni en hafa nú tapað tveimur leikjum í röð.

Í kvöld töpuðu Færeyingar 2-0 fyrir Sviss í Luzern. Eren Derdiyok kom Svisslendingum yfir á 27. mínútu og Stephen Lichtsteiner bætti öðru marki við sjö mínútum fyrir leikslok.

Gunnar Nielsen og Sonni Ragnar Nattestad, leikmenn FH, voru í byrjunarliði Færeyja og léku allan leikinn.

Svisslendingar eru á toppi B-riðils með fullt hús stiga en Færeyingar eru með fjögur stig í 4. sætinu.

Í sama riðli unnu Ungverjar 4-0 sigur á Andorra.

Zoltán Gera, Ádám Lang, Ádám Gyurcsó og  Ádám Szalai skoruðu mörk Ungverjalands sem er í 2. sæti riðilsins með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×