Innlent

Guðni um ákvörðun forseta: "Ég skil þessa niðurstöðu mjög vel“

Atli Ísleifsson skrifar
„Þetta var glæsileg kveðjuræða hjá forsetanum. Hann er að taka rétta ákvörðun fyrir sjálfan sig og sína fjölskyldu og er búinn að þjóna þessari þjóð vel og lengi. Ég skil þessa niðurstöðu mjög vel,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta að bjóða sig ekki fram til endurkjörs.

Guðni hefur um árabil verið einn helsti stuðningsmaður Ólafs Ragnars og segist sjálfur alveg eins hafa átt von á þessari ákvörðun. Hann telur að Ólafs Ragnars verði í sögubókum minnst af virðingu og þakklæti.

„Hann ávann sér mikið traust og hefur verið góður málsvari og breytt forsetaembættinu. Menn gera því miklar kröfur til næsta forseta eins og þeir hafa reyndar gert til allra forseta. Þær miðast þó dálítið við þau verk að vera þessi öryggisventill sem getur kallað þjóðina til og vera málsvari hennar í erfiðum málum á erlendum vettvangi, eins og hann var í Icesave-málinu og hryðjuverkalögunum.

Ég held að það leiki góðir vindar um Ólaf Ragnar Grímsson og að hann muni njóta vaxandi virðingar. Ég spái því reyndar að hann sé alls ekki hættur að láta til sín taka – að hann muni vinna að hinum stóru verkefnum sem hann hefur verið að sinna, eins og norðurslóðum og fleiru,“ segir Guðni.

Hann segist þó ekki hafa neinn sérstakan í huga þegar hann er spurður um hvern hann myndi vilja sjá taka við embættinu af Ólafi. „Þetta er algjörlega óráðið. Ég heyri engan sem enn hefur nefndur verið sem hefur náð neinni sveiflu. Þú þarf þjóðin að hugsa djúpt og þeir einstaklingar sem treysta sig í þetta verkefni. Það eru spennandi tímar framundan,“ segir Guðni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×