Innlent

Guðni boðar flokksformenn á sinn fund á morgun

Atli ísleifsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Vísir/Anton Brink
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur boðað forystufólk stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi, til funda á morgun, föstudaginn 2. desember.

Í tilkynningu frá skrifstofu forseta segir að hann muni fyrst hitta formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, klukkan 10:00.

Fundurinn verður á skrifstofu forseta að Staðastað, Sóleyjargötu 1.

Í kjölfarið fylgja fundir með öðru forystufólki og við það miðað að hver fundur vari um hálfa klukkustund.


Tengdar fréttir

„Orðin pínulítið stressuð en á sama tíma nett óþolandi“

„Ég ætla ekki að neita því að ég er orðin pínulítið stressuð en á sama tíma nett óþolandi á internetinu. Ég biðst formlega afsökunar á því,” segir ástríðubakarinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir, konan á bak við bökunarbloggið blaka.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×